Kirkjuritið - 01.06.1975, Qupperneq 12
árið 1919 var honum veitt Setberg í
Eyrarsveit og þar þjónaði hann unz
hann baðst lausnar fyrir aldurs sakir
1954. Hann var prófastur í Snæfells-
nessprófastsdæmi í rétt 20 ár. Eftirlif-
andi konu sinni, Hólmfrfði Halldórs-
dóttur, kvæntist hann 1916. Þau eign-
uðust 5 börn, sem öll eru á lífi.
Sr. Jósef Jónsson var gagnmerkur
fulltrúi sinnar kynslóðar í prestastétt,
hollur kirkju sinni í hvívetna, sam-
vizkusamur frábærlega í öllum emb-
ættisstörfum og mátti hvergi vamm
sitt vita. Hann var glaður og reifur
í umgengni, örvandi og hlýr, samúð-
arríkur og viðkvæmur, hreinlyndur og
vinfastur. Trú hans var einlæg og
fannst það jafnan, bæði f prédikun
hans og í einkaviðtölum, að þar sló
heitt hjarta undir. Staðinn að Setbergi
sat hann og þau hjónin með miklum
myndar- og menningarbrag.
Sr. Páll Þorleifsson lézt 19. ágúst,
76 ára að aldri. Hann fæddist 23.
ágúst 1898 að Hólum í Hornafirði,
lauk embættisprófi 1925, og var veitt-
ur Skinnastaður haustið 1926. Þar
þjónaði hann síðan unz hann fékk
lausn frá embætti 1. sept. 1966. Hann
var settur prófastur 1955, skipaður
1959. Eftir að hann lét af embætti tók
hann tvívegis setningu í prestaköll ár-
langt, hið fyrra sinn í Norðfjarðar-
prestakalli f mikilli nauðsyn, síðara
sinnið í Nesprestakalli í Reykjavík.
Eftirlifandi kona hans er Guðrún Elísa-
bet Arnórsdóttir. Þau giftust 1930 og
eignuðust 5 börn, öll á lífi.
Sr. Páll Þorleifsson var mikill gáfu-
maður, manna bezt máli farinn í ræðu
sem riti, víðlesinn og fjölfróður, ágæt-
ur starfsmaður að hverju sem hann
90
gekk, kennari frábær. Hann naut að
verðleikum mikillar virðingar í héraði,
svo og heimilið að Skinnastað, og í
hópi stéttarbræðra var hann einn hinn
Ijúfasti bróðir og minnisstæðasti.
Sr. Jón Guðnason lézt 11. maí, 86
ára að aldri. Hann var fæddur 12. júIí
1889 að Óspaksstöðum í Hrútafirði,
lauk embættisprófi 1915, voru veitt
Staðarhólsþing 1916, Suðurdalaþing
1918, Prestsbakki í Hrútafirði 1928 og
þar þjónaði hann unz hann var skipað-
ur skjalavörður við Þjóðskjalasafnið
1948. Hann var kjörinn alþingismaðut
Dalamanna 1926 og sat eitt þing,
gegndi fjölmörgum almennum störfum,
hafði m. a. á hendi stjórn Héraðsskól'
ans að Reykjum í tvö ár. Kona hans,
Guðlaug Bjartmarsdóttir, lifir mann
sinn. Þau giftust 1915 og eiga 7 börn-
Sr. Jón Guðnason var ástsæll og
virtur prestur, ræðumaður góður og
reisn yfir öllu fasi hans og framkomm
Hann var gæddur aðlaðandi hlýju og
í viðræðum hafði hann jafnan af mikiu
að miðla, því athyglisgáfan var skörp
og minnið frábært. Hann var einn hinn
traustasti fræðimaður sinnar samtíðaf
í sögulegum efnum, einkum ættfrasði-
og hefur afkastað miklu á því sviði-
Þessa merku bræður kveðjum véf
í þakkar hug og sendum ástvinum
þeirra samúðarkveðju. Guð blessi Þ®
og þau.
Látnar prestkonur
Hinn 30. október andaðist frú Guð'
björg Hjartardóttir, kona sr. JakoP5
Einarssonar, fyrrv. prófasts. Hún var
hálfníræð, fædd 31. jan. 1889.
i