Kirkjuritið - 01.06.1975, Blaðsíða 14
inn sér svo að af ber. Ég nefni að-
eins brautryðjendastarf, sem hann
vann fyrr á árum á sviði slysavarna-
mála, og það einstaka þrekvirki, sem
hann hefur unnið með forgöngu sinni
um stofnun byggðasafnsins á Akra-
nesi. Þar hefur ekki aðeins sagt til
sín slík útsjón, árvekni og vinnuaf-
köst, sem fágætt má telja, heldur og
listgáfa, sem setur mark á allt, sem
hann fer höndum um. Það er Akur-
nesingum sæmd að þeir mátu störf
hans að verðleikum svo mikils, að þeir
gerðu hann að heiðursborgara bæjar-
ins á sjötugsafmæli hans.
Dr. Jakob Jónsson fékk lausn 1.
jan. Hann er f. 20. jan. 1904, lauk
embættisprófi 1928, varð þá aðstoðar-
prestur föður síns um nokkurra mán-
aða skeið en tók Norðfjörð 1929, fyrst
settur þar, síðan skipaður. Fór vestur
um haf 1934 og þjónaði söfnuðum is-
lendinga í Kanada til ársins 1940, en
í ársbyrjun 1941 var hann skipaður
sóknarprestur í Hallgrímsprestakalli í
Reykjavík og þjónaði því kalli síðan.
Konu sinni, frú Þóru Einarsdóttur,
kvæntist hann 1928.
Dr. Jakob hefur verið mikill at-
kvæðamaður í stöðu sinni og jafnan
haft athygli alþjóðar, enda svo búinn
hæfileikum og þeim áhuga gæddur,
að miklu sætir hvort tveggja. Um langt
skeið var hann í forustu í félagsmál-
um presta og vann ósleitilega fyrir
stétt sína. Hann er frjór ræðumaður
og stórvel ritfær og eru afköst hans
í ritstörfum mikil og fjölþætt. Jafn-
hliða kröfumiklum prestsskap hefur
hann stundað vísindastörf og varð dr.
theol. við Háskóla íslands 1965 fyrir
92
ritgerðina Humour and Ironi in the
New Testament.
Sr. Kristián Bjarnason á ReynivöH'
um fékk lausn frá fardögum þ. á. sakit
vanheilsu. Hann er f. 25. júní 1914,
lauk embættisprófi í guðfræði 1947 en
áður hafði hann lokið háskólaprófi 1
viðskiptafræðum. Sama ár var hann
settur prestur í SvalbarðsprestakaH1
(Raufarhöfn) og veitt það kall ári síð'
ar, en 1950 fékk hann veitingu fybr
Reynivallaprestakalli, sem hann þjón'
aði síðan. Kona hans er Guðrún Guð'
mundsdóttir, þau giftust 1943.
Sr. Kristján hefur átt við langvar-
andi vanheilsu að stríða og hefur Þvl
ekki sem skyldi getað neytt ágaetrð
starfskrafta sinna og hæfileika í seinn1
tíð. Hann vann sér álit þegar í upP'
hafi prestsskapar síns fyrir geðþekk^
og myndarlega framkomu í embættiS'
störfum og fjölhæfni og dugnað 1
hverju sem hann lagði hönd að. Hanf1
var m. a. umsvifamikill í búsýslu
hinn bezti liðsmaður í almennum mál'
um sveitar sinnar. Honum og ko^
hans, frú Guðrúnu, sem fyrr og síð3r
hefur staðið við hlið hans með sínu
hljóðláta, holla þreki, sendum v®r
bróðurkveðjur og biðjum Guð
blessa þau og börnin þeirra.
Öllum þessum bræðrum, sem nU
hafa látið af embættisstörfum, ertJ
þakkir færðar í nafni kirkjunnar. Farn'
ist þeim vel á veginum fram
skylduliði þeirra.
Nýir prestar
Átta menn bættust í hóp vígðr3
presta á árinu. Þeir eru:
J