Kirkjuritið - 01.06.1975, Page 26

Kirkjuritið - 01.06.1975, Page 26
— Hvernig var hún torskilin? — Ja, ég á við það, að ég kom þarna með því hugarfari, að ráð- stefnan væri fyrst og fremst kristin. — En þessar myndir juku skilning minn þannig, að mér varð Ijóst, að vissulega er full þörf á, að kirkjan reyni að hafa áhrif á val og jafnvel framleiðslu sjónvarpsefnis, annars en þess, sem er til beinnar boðunar eða kennslu í kristnum fræðum. Rómversk- kaþólskir hafa skilið þetta mjög vel. Ég kynntist þarna t. d. mjög merki- legum manni, Parkinson að nafni, sem starfaði hjá BBC í 30 ár, en var kaþólskur. Og þeir kaþólsku eru nú búnir að ráða hann til sín. Hann sagði: „Það, sem þarf að gera, er að koma kristnum mönnum að við fjölmiðlana." Þrjú hundruð og tuttugu metrar af brauði Þessu næst var fjallað um tilraunir með tilbeiSslusiði eSa guSsþjónustur. Þar fékk engin mynd fyrstu verðlaun, en mynd af rómversk-kaþólskri jóla- messu hlaut viðurkenningu. Hún var tekin um síðustu jól í svissnesku þorpi. Hún var í litum, tekin í lítilli kirkju. Presturinn, sem messaði, var þarna á mótinu, ungur maður, varla þrítugur. Það var óvanalegt við messuna, að hann hafði hóp af „popptónlistarfólki“ með sér í staðinn fyrir organista og kór. Hann tónaði ekki, en öll svör voru flutt í einhvers konar ,,popptóni“. Þarna var þó ekki um að ræða hávaða- sömustu ,,popptónlist“, heldurvar hún fremur í þjóðlagastíl. Mér leizt ekkert á þetta framan af, en það sótti á, og ég var farinn að kunna vel við það undir lokin. Messan var fremur löng, stóð líklega klukku- stund og stundarfjórðung. Ég minntist á þessa messu við nokkra kaþólikka, sem voru þarna, og þeir hristu bara höfuðin. Þeim leizt ekkert á. Önnur furðuleg mynd var sýnd þarna. Hún hét: „320 metrar af brauði og 250 lítrar af víni.“ Þessi mynd vaf þýzk og gerð af lútherskum rnönnum- Um hana hef ég skrifað þetta hjá mér: „Furðuleg samkoma". Hún fór fram í lútherskri kirkju í Hamborg. Söfnuð' urinn var fólk á öllum aldri. Ég áætlS’ að það hafi verið um 500 manns. ÞV1 var skipt í hópa, og þar léku menn sér, fengu að tjá sig á þann hátt, sem þeir vildu. Sumir máluðu á veggi, sem áður höfðu verið þaktir pappír. Aðrir klipptu myndir, sumir dönsuðu, sumit blésu sápukúlur. Það gerði einn uppi 1 predikunarstólnum. Síðan var sungið’ og þar næst kom svo það furðulegm þrjú hundruð og tuttugu metrar ^ franzbrauði og tvö hundruð og fimmtí^ lítrar af víni. Þessu var útdeilt, eftir a® innsetningarorðin höfðu verið lesin o9 fleiri ritningarorð. Þá var alveg hljóÖ- Brauðið var borið inn í stórum hleif- áþekkum meðal hjólbarða. Hann vaf síðan tættur í sundur og stykkin rét* frá manni til manns. Allir bekkir höfðu verið fjarlægðir úr kirkjunni, svo menn sátu bara í hópum á gólfinu hér og þar. Síðan var borin inn heljarstór flaska, helt úr henni í litlar karöfluroð úr þeim í pappamál handa öllum hópn' um. Loks endaði svo allt með einuh1 allsherjar hallelújasöng. Þetta var mjög furðulegt. Ég rsedd' það við ýmsa og þeir hristu nú höfnð in, en voru þó á því, að þetta v3®rl 104

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.