Kirkjuritið - 01.06.1975, Page 64
Frd tíðindum heima
Fréttabréf frá
Prestskvennafélagi íslands
Þann 24. júní 1975 var 19. aöalfundur
Prestskvennafélags íslands haldinn á
prestssetrinu Skálholti. í upphafi fund-
ar var sunginn sálmurinn „Fögur er
foldin,“ en því næst las formaður fé-
lagsins, frú Rósa Björk Þorbjarnardótt-
ir, ritningarkafla úr Lúkasarguðspjalli.
Var síðan tekið til aðalfundarstarfa
með hefðbundnum hætti. Ritari, Anna
Magnúsdóttir, las upp fundargerð síð-
asta aðalfundar, er fundarkonur sam-
þykktu, og formaður flutti skýrslu um
starf félagsins. Var þar einkum getið
hins norræna móts prestskvenna, er
félagið hafði veg og vanda af sumarið
1974. Kvað formaður mótið hafa tekizt
með ágætum, enda hefðu erlendir
gestir rómað mjög móttökur hér á
landi. Þá var og getið kvöldvöku þeirr-
ar, sem félagið efndi til í húsakynnum
Bústaðakirkju á útmánuðum. Var fyrr-
verandi prestum og konum þeirra boð-
ið þangað ásamt prestsekkjum. Prests-
konur úr Reykjavíkurprófastsdæmi
gáfu kökur til veitinga á þeirri sam-
komu, en konur úr Bústaðasókn veittu
kaffi og gengu um beina.
í skýrslu sinni ræddi formaður enn-
fremur nokkuð um lög félagsins og
varpaði fram spurning um, hvort ekki
mundi tímabært að endurskoða þau,
142
beindi síðan nokkrum orðum til félags'
kvenna í Rangárvallaprófastsdæmi, e<
annast skulu undirbúning næsta aðal'
fundar, og minntist loks látinna prestS'
kvenna.
Er skýrsla formanns hafði veh®
rædd, las gjaldkeri félagsins, frú As'
laug Sigurbjörnsdóttir, reikninga.
þar fram, að nokkur hagnaður haf®1
orðið af hinu norræna prestskvenns'
móti.
Á fundinum var ákveðin hækkun f®
lagsgjalda, og eru þau nú kr. 500 3
ári. Jafnframt var svo ákveðið, að f®
lagskonur, sem náð hefðu 70 ára aldrl
skyldu frá og með þessu ári vera
heiðursfélagar og ekki greiða árgjö^'
Að venju kynntu allar viðstaddar
konur sig í heyranda hljóði, en síð03
vargert fundarhlétil kaffidrykkju. Þá9l'
fundarkonur þá kaffiveitingar hjá Öo(][>
Magnúsdóttur í Skálholti.
Að kaffihléi loknu sagði frú Ingibjd^
Þórðardóttir frá norræna prestskvenn3
mótinu, en hún var ein þeirra kvenn3,
er sátu í undirbúningsnefnd þess.
frásögn hennar afar fjörleg og ^
mestu ágætum, enda gerðu fundnr
konur góðan róm að.
Við stjórnarkjör urðu nokkrar brey
ingar á stjórn félagsins. Þær Ásla
1