Kirkjuritið - 01.06.1975, Page 68
— The Voice of Andes — „Röddin frá
Andes, sem er fyrsta vígða útvarps-
sendistöðin, vígð 1931. Aðal hlutverk
þessarar stöðvar hefur verið að ná til
fólks í Suður-Ameríku, þar með taldir
Indiánar. með kristilegan boðskap.
4. TWR. „Trans World Radio“, sem
á sínar evrópsku sendistöðvar í Mon-
aco, en hefur nú nýlega reist sterkari
sendistöð á hollensku eynni Bonaire
í Karabiska hafinu. TWR sendir dag-
lega út mikið efni á Evrópumálum.
Það er einnig TWR, sem sendir út
dagskrárefni á dönsku, útbúið af hinni
dönsku kristilegu fréttastofu NOREA
útvarpsins í Rodding.
5. CORDAC er nafnið á kristilegu
sendistöðinni í Burundi, í Afríku. Sú
stöð sendir til nálægra héraða.
6. FEBA. „Far East Broadcasting As-
sociation“ er aðeins fárra ára gömul
og er á Seychell eyjum. Útvarpsstöð
þessa félags útvarpar aðallega dag-
skrárefni til Indlands.
Auk þessa hafa mörg kristileg félög
víða í heiminum leigt sér tíma hjá
stöðvum sem leigja fyrirtækjum og
félögum auglýsinga og kynningartíma,
til þess á þann hátt að kynna fólki
kristindóminn.
Per Lönning
segir af sér biskupsdómi
Per Lönning, biskup í Borgbiskups-
dæmi í Noregi, hefir sagt af sér bisk-
updómi í mótmælaskyni við það, a®
Stórþingið samþykkti ný fóstureyðinð'
arlög. Þar er gert ráð fyrir rýmkun fyh-1
laga. Nýju lögin gera ekki ráð fyrir
frjálsum fóstureyðingum, heldur er
ákvörðun tekin af tveim læknum. Kon-
ur geta þó áfrýjað úrskurði þeirra t'f
sérstakrar nefndar, er tekur ákvörðnn
með félagslegar og læknisfræðilegar
ástæður í huga.
i afsagnarbréfi sínu til konung5
sagði Per Lönning, að rödd kirkjunnar
hafi verið hunzuð af yfirvöldum.
Per Lönning er 47 ára að aldri. Hann
var þingmaður áður en hann var kjör'
inn og vígður biskup árið 1969. Þetta
er fyrsta afsögn biskups á friðartím3
í Noregi.
Biskupinn hefir látið eftir sér haf0,
að hann vonaði í einlægni, að afsögn
sín yrði til þess að flýta fyrir fullu sjá|f'
stæði kirkjunnar og aðskilnaði við rii<
ið. Ekki er búizt við, að þessi aðskiln
aður verði í náinni framtíð. Hinir bis^
uparnir 9 hafa sagt, að tími sé ef(l<l
kominn til að slíta sambandi ríkis
kirkju, en þeir virði skoðanir Pe
Lönning og séu af alhug sammala
sjónarmiðum hans á nýju lögunum uíl1
fóstureyðingar.
Samband ríkis og kirkju hefir aldre.
verið jafn örðugt og spennt í Nore^
og nú, að talið er, og afsögn
Lönning valdi því, að ekki sé hæQl 3(
búast við óbreyttu ástandi í samsk'P
um ríkis og kirkju.
146