Kirkjuritið - 01.06.1976, Side 7

Kirkjuritið - 01.06.1976, Side 7
Til minningar um Ólaf Ólafsson, kristniboða °lafur Ólafsson kristniboði sofnaði á liðnu vori og bíður nú hins mikla bá- shnuhljóms. Þar með er lokið ævi manns, er með einstæðum hætti varð aldamótamaður í kristnisögu íslands. Segja má, að með honum hefjist kristniboðsöld hin nýja á íslandi. Hann var og verður sá fyrsti og eini Olafur Ólafsson kristniboði. ^að var ekki einungis svo, að köllun hans yrði með einkennilegum og sftirminnilegum hætti og hin umbrotasama starfsævi hans í Kína öll frjó °9 merkileg. Hann var sjálfur postuli og pistill Guðs á íslandi, bréf Krists skrifað á hjartaspjald úr holdi. Svo trúr var hann köllun sinni, að hann Var® aldrei annað en Ólafur kristniboði, hversu hvítar sem silfurhærur hans Ur3u. Svo lengi sem hann mátti nokkuð muna til daga sinna, mundi hann °9 vissi, að hann var sendur til að veiða menn, leiða hinn týnda sauðinn |'l Krists. Svo brann þá hinn lifandi eldur Jesú Krists í hjarta hans til ævi- oka. í þeim eldi skírðist einnig og varðveittist bænin fyrir hinni miklu, k'hversku þjóð. skal ekki telja fram daga Ólafs né störf umfram það, sem áður hefur verið gert hér í Kirkjuriti. Þegar skráðar verða kristniboðssaga íslands og Sa9a Hins íslenzka Biblíufélags, verður hans getið að verðleikum. Og miklu v'ðar kemur hann þó við sögu. En tilefni þessara lína er vangoldin þakkar- u|d, lítill vottur mikillar virðingar, og þó umfram allt þetta: Akrarnir eru Vltir> verkamennirnir fáir — og einum færri nú. Biðjum því herra uppsker- Unnar, að hann sendi menn. Með kveðju til ástvina. G. Ól. Ól. 85

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.