Kirkjuritið - 01.06.1976, Blaðsíða 19
Þessa ungu bræður býð ég vel-
komna til starfa og vænti hins bezta
af þeim öllum með Guðs umsjá.
AÖrar breytingar
þá er að geta þessara breytinga:
Sr. Páll Pálsson var skipaður sókn-
arPrestur í Bergþórshvolsprestakalli,
Ran9-, 1. okt. Er hann boðinn velkom-
lnn að nýju í hóp sóknarpresta.
Sr- Guðmundur Óskar Ólafsson var
skipaður sóknarprestur í Nespresta-
kal|i, Reykjavíkurprófastsdæmi, 1. okt.
Einnig hann er boðinn velkominn að
nyju í þjónustu þjóðkirkjunnar, en
ann var áður farprestur, síðan um
skei3 fríkirkjuprestur í Hafnarfirði.
Sr- Hörður Þ. Ásbjörnsson, áður
settur í Bergþórshvolsprestakalli, var
skipaður sóknarprestur í Bíldudals-
Pnestakalli, Barð., 1. nóv.
Rr- Úlfar Guðmundsson, sóknar-
Prestur á Ólafsfirði, var skipaður bisk-
uPsritari 1. febr. Hann var eini um-
s®kjandinn um það starf.
starf æskulýðsfulltrúa barst
'nnig aðeins ein umsókn, frá Þorvaldi
arli Helgasyni, farpresti, og hefur
ar|n verið ráðinn í það starf frá 1.
agiist n. k.
ar^r' iyiegnús Guðjónsson, áður sókn-
Prestur á Eyrarbakka, var ráðinn
•, estur við Frlkirkjuna í Hafnarfirði frá
hef 6S fagnaðarefni, að hann
ast^^ fen9i® heilsu til þess að tak-
a hendur prestsskap að nýju.
aðu Hjalti Guðmundsson var skip-
Da,r Prófastur í Snæfellsness- og
aprófastsdæmi frá 1. okt.
Guðmundur Einarsson, framkvæmda-
stjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, var
frá 1. jan. þ. á. ráðinn til þess að vera
blaðafulltrúi kirkjunnar, jafnhliða starfi
sínu við Hjálparstofnunina. Fram-
kvæmdastjórn Hjálparstofnunar átti
þátt í þessari ráðstöfun, sem útheimti
að sjálfsögðu vissa hagræðingu áskrif-
stofu hjálparstarfsins. Þetta er bráða-
birgðaráðstöfun en kemur til móts við
brýna nauðsyn, sem oft hefur verið
bent á.
Með ráðningu Guðmundar í þetta
starf varð mögulegt að hleypa af
stokkum Fréttabréfi því frá Biskups-
stofu, sem hóf göngu í byrjun ársins.
Vona ég að þessi viðleitni mælist vel
fyrir og þyki horfa til nokkurra nytja.
Leyfi frá störfum
Óvenju margir prestar hafa orðið að
fá sjúkraleyfi á þessu ári, lengur eða
skemur. Þá hafa þrír þjónandi prestar
haft leyfi í vetur vegna náms erlendis,
þeir sr. Einar Jónsson, sr. Gunnar
Kristjánsson og sr. Sigurjón Einars-
son. Þegar sjúkraleyfi er veitt að til-
lögu læknis eiga menn rétt á að halda
launum tiltekinn tíma án þess að bera
kostnað af þjónustu embættis síns.
Öðru máli gegnir um námsorlof. Þá er
sá kostur næstur, að nágrannaprestur
þjóni með þeim kjörum, sem um
semst milli hans og leyfishafa. Sé
farprestur til ráðstöfunar, sem ekki er
alltaf, verður að meta eftir aðstæðum,
hvar hans er mest þörf. Heimild er í
lögum til þess að ráða fleiri en einn
farprest og samþykkti kirkjumálaráð-
herra, að sú heimild væri notuð eins
97