Kirkjuritið - 01.06.1976, Blaðsíða 44

Kirkjuritið - 01.06.1976, Blaðsíða 44
hvað hlutaðeigandi ætti við með orð- inu „Kristur" og ummælum sínum um þann Guð, er hann opinberar. Ég minnist þess, að ég með sjálf- um mér féllst fyllilega á þessa leið- réttingu. Ég var og er þeim viðmæl- anda mínum, er þar átti hlut að máli, svo sammála, að mér óar við efasemd- um sr. Kristjáns varðandi áþekka skil- greiningu „hreinnar trúar.“ Mér er nær að halda, að botninn detti úr allri hugsun um Krist og um trú, ef ekki er unnt að komast að niðurstöðum um þessi efni. Ég ætla þó ekki að ganga feti fram- ar en orðið er. Annar maður, mér fremri, hefur tekið sér fyrir hendur að leita téðra skilgreininga í tilefni af umræðu síðustu missera. Að honum vík ég í lok þessa máls. En getum við sr. Kristján Róberts- son ekki orðið á einu máli um það, að súrt sé okkar sameiginlega skipbrot, ef við eftir allt saman svömlum á sökkvandi fleyi í botnlausu kviksyndi, þar sem engin leið er að skilgreina þau grundvallaratriði, sem við þrátt fyrir allt eigum báðir sömu hlutdeild í, — og ef við þar með heldur ekki fáum með réttum rökum vísað nokkru því öðru á bug, er ótvírætt brýtur í bága við þennan grundvöll? í þessu sambandi getur sr. Kristján þess, að það sé miður „viturleg kirkju- pólitík" að berjast gegn fyrirbrigðum á borð við spíritisma, guðspeki eða nýalsstefnu. Þessa ábendingu hef ég þrásinnis heyrt undanfarin misseri. Mér þykir hún skrítin. Ég skil víst ekki orðið „kirkjupólitík" í þessu samhengi. Ég hafði heldur ekkert slíkt í huga, er ég hóf þetta mál. Mér lá nokkuð á 122 hjarta, og ég sagði það. Þetta var allt og sumt. Sjálfum var mér það lengi óljúft að hefja umræðuna. En ég fann, að hún hlaut fram að koma. Og mér voru öldungis framandi allar „kirkjupólitískar" hugleiðingar. Satt að segja tortryggi ég einlægni manna, sem eru svo útsmognir að þeir sitja og reikna fyrirfram á fingi'- um sér afleiðingar þeirra orða, er þeim í alvöru brenna á vörum. Má vera, að sú tortryggni og þar með þörf mín fyrir opinská skoðanaskipti, séu minn eiginn akkillesarhæll. En honum verð ég að una. VI. Sr. Kristján klykkir út með saman- burði á nokkrum guðfræðistefnum aldarinnar. Hér tek ég fúslega undit orð hans: Engri stefnu er alls varnað, svo lengi sem hún heldur sig á kristn- um grundvelli. Saga guðfræðinnar er díalektísk: Tiltekið viðhorf magnaf fram andstæðu sína, og ný öld renn- ur upp, — en einnig hún á sér önd- verðan arftaka og þannig koll af kolli- í sömu svifum talar sr. Kristján um umburðarlyndi gagnvart trúbræðrum Um það efni hef ég þetta að segja; Ég er þess fullviss og hef raunar sannprófað það ríkulega að undan- förnu, að það er kirkju og kristni til góðs, er einhver með óviðráðan- legum hætti finnur sig knúinn eða kallaðan til að taka stórt upp í s'^ vegna trúarskoðana sinna. Að vísu skyldi enginn skerast í slík mál nema eldurinn innan rifja verði ekki lengur haminn. Eftirleikurinn er nefnileð3 engan veginn auðveldur. En sjálft upP' lokið horfir til heilla, þegar það er
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.