Kirkjuritið - 01.06.1976, Blaðsíða 56
miðlaði þeim af sínum mikla fróðleik
og sýndi þeim inn í menningu og
heim horfinna kynslóða.
Ég minnist með mikilli þökk margra
ánægjustunda á heimili hans og sam-
starfs og samfunda við hann. Slíkar
stundir voru ávallt bjartar og hlýjar
fagnaðarstundir.
Ég minnist séra Einars sem mikil-
metins starfsbróður og einnig sem
hins hins elskulega og ágæta þrófasts
hér í Borgarfirði. Prófastsstörfunum
gegndi hann af sömu Ijúfmennskunni,
hlýjunni og mildinni eins og öðrum
störfum, sem honum voru falin í lífinu.
Þegar hann stjórnaði sínum síðasta
héraðsfundi í Reykholtskirkju árið
1972, lauk hann setningarræðu sinni
með þessum orðum Einars Benedikts-
sonar:
mætti hlýna um alla menn, alla, sem
vildu reyna að koma góðum málum
fram, því sem væri gott fyrir líf og
eilífð. Sjálfur vann hann og fórnaði í
þágu hins góða, og það var ávallt hlýtt
um hann og bjart yfir honum.
Þegar séra Einar Guðnason flutti
sína kveðjuguðsþjónustu í Reykholts-
kirkju sunnudaginn 5. nóvember 1972,
þá man ég, að hann lagði út af og
hafði sem yfirskrift þessi orð Heilagrar
ritningar: „Lofaður sé Guð, er eigi
vísaði bæn minni á bug, né dró misk-
unn sína í hlé við mig.“ Með þessum
orðum vildi hann þakka Guði, sem
hafði bænheyrt hann og gefið honum
mátt og miskunn starfsárin mörgu og
góðu í Reykholti. Glaður og þakklátur
horfði hann yfir liðinn starfsdag, og
Hugur vor bindist þér, himneska mynd,
sem háfjallið Ijómar, þess rót og þess tind,
sem oft lézt I fólksins framtíðarverki
eitt frækorn smátt eiga voldugan þátt.
Láttu vor frækorn lifna og dafna,
láttu þau vaxa og eining þeim safna.
Skapaðu úr klakanum læk og lind
og lífsflóð úr jökulsins serki.
Glæddu í brjóstunum bróðerni og sátt,
bræddu úr heiftinni kærleikans mátt.
Hreinsaðu landið með heilnæmum anda,
en horfðu í náð á allt kúgað og lágt.
Ljómaðu í hjörtunum Ijóssins merki,
hjá landslýð, hjá valdsmanni og klerki.
Þessi orð skáldsins voru eins og töluð
út úr hans eigin hjarta. Þau vildi hann
gera að sínum orðum, sinni bæn og
von. Hann vildi, að við mennirnir mætt-
um bindast hinni himnesku mynd, Guði
Ijóssins og kærleikans. Á þessum fundi
lét hann einnig í Ijós þá von, að það
vongóður beið hann ævikvöldsins, full'
viss um föðurvernd Guðs.
Séra Einar Guðnason andaðist 1
Landspítalanum í Rvík að kvöldi hins
14. janúar. Jarðarför hans fór fram f^
Reykholtskirkju laugardaginn 24. jan'
úar að viðstöddu mjög miklu fjölmenm-
134