Kirkjuritið - 01.06.1976, Blaðsíða 18
5. Sr. Guðjón Guðjónssonsagði lausu
starfi sínu sem æskulýðsfulltrúi kirkj-
unnar frá 1. marz s. I. en því starfi hafði
hann gegnt um tæpra þriggjaáraskeið.
Áður var hann sóknarprestur í Stóra-
Núpsprestakalli, vígður þangað haust-
ið 1970. Hann hefur nú flutzt af landi
brott, tekið prestsstarf í heimalandi
konu sinnar, Svíþjóð. Er mikil eftirsjá
að honum úr þjónustu íslenzku kirkj-
unnar svo sem hann er gáfum búinn,
menntun, lipurð og starfsorku. Vel mun
honum fara hvar sem hann starfar.
Gæfa fylgi honum og fjölskyldu hans.
6. Sr. Sveinbjörn Bjarnason var skip-
aður sóknarprestur í Mosfellspresta-
kalli frá 1. marz. Hann vígðist til að-
stoðarþjónustu í Hjarðarholtspresta-
kalli 1. júlí 1973 og þjónaði þar í
nokkra mánuði, en hvarf síðan utan til
framhaldsnáms. Hefur hann og gegnt
prestsstörfum í Skotlandi. Svo skipað-
ist um einkahagi hans, að hann sá sig
tilneyddan að beiðast lausnar frá em-
bætti sem sóknarprestur í Mosfells-
prestakalli og var lausnin veitt frá 1.
maí og prestakallið auglýst að nýju.
Vér biðjum honum og fjölskyldu hans
blessunar á framtíðarvegi.
Nýir prestar
Fjórir ungir menn hafa hlotið vígslu
til prestskapar á árinu.
1. Kjartan Örn Sigurbjörnsson var
frá 1. júlí 1975 settur til þess að vera
annar sóknarprestur í Vestmannaeyj-
um, vígður í Skálholti 29. júní. Veit-
ingu fyrir þessu embætti hefur hann
nú fengið frá 1. þ. m.
Sr. Kjartan er fæddur á Siglufirði
23. okt. 1948, sonur hjónanna Guðrún-
96
ar Þorbjörnsdóttur og Sigurbjörns
Sveinssonar, verkstjóra. Stúdentsprófi
lauk hann 1968 og embættisprófi í
guðfræði vorið 1974. Var kennari á
Akranesi næsta vetur. Kona hans er
Katrín Þórlindsdóttir.
2. Sama dag, 29. júní, var og vígður
í Skálholti Þorvaldur Karl Helgason,
ráðinn frá 1. ágúst til þess að vera
farprestur.
Sr. Þorvaldur fæddist í Reykjavík 9-
apríl 1950. Foreldrar hans eru hjónin
Gunnþóra Kristmundsdóttir og Helgi
Þorláksson, skólastjóri. Hann lauk
stúdentsprófi vorið 1970 og embættis-
prófi í guðfræði vorið 1975. Kona hans
er Þóra Kristinsdóttir.
3. Svavar Stefánsson var settur
sóknarprestur í Hjarðarholtsprestakalli
frá 1. október, vígður 14. sept.
Sr. Svavar er fæddur 14. marz 1949
í Reykjavík. Foreldrar hans eru hjónin
Ólöf Matthíasdóttir og Stefán Geir
Svavars, viðskiptafræðingur. Stúdents-
prófi lauk sr. Svavar 1969 og embættis-
prófi í guðfræði 1975. Kona hans er
Auður Björk Kristinsdóttir.
Hann hefur nú að eigin ósk verið
settur til þess að vera sóknarprestur
í Norðfjarðarprestakalli, Austfj., frá 13,
þ. m. Það kall var þrívegis auglýst eft|r
að það losnaði en engin umsókn barst-
4. Skírnir Garðarsson vígðist 13'
þ. m., settur sóknarprestur í Hjarðar-
holtsprestakalli frá 15. s. m.
Sr. Skírnir fæddist á Akureyri 13'
nóv. 1950. Foreldrar hans eru Erna
Sigurjónsdóttir og Garðar Loftsson’
Hann varð stúdent á Laugarvatni 197
og embættisprófi í guðfræði lauk hann
á þessu vori. Hann á norska kona.
Torill Albrigtsen.