Kirkjuritið - 01.06.1976, Síða 12

Kirkjuritið - 01.06.1976, Síða 12
og sýndu þann kærleika, sem heimur- inn hafði ekki kynnzt áður. Þeir elsk- uðust innbyrðis. Þeir hjálpuðust að. Og sérstæðast og áhrifaríkast af öllu: Þeir sýndu líka hjálpsemi og kærleika þeim, sem voru ekki kristnir, jafnvel berum óvinum sínum. Þeir gerðu sér engan mannamun. Og innan kirkjunnar var alger jöfnuður. Þrælar og ambáttir nutu þar sömu virðingar og frjálsir menn, þó að borgaraleg staða þeirra væri óbreytt. í kristnum söfnuði gat það komið fyrir, að þræll væri settur yfir húsbónda sinn: Mansmenn gátu orðið prestar og biskupar. Þegar Júlí- anus keisari hóf sína hatrömmu bar- áttu gegn kristnum mönnum, þá sagði hann í bréfi, að verst viðureignar væri þessi villa, kristindómurinn, vegna þess að kristnir menn væru svo kunnir að kærleiksverkum, einnig í þágu heið- ingja, jafnvel við óvini og ofsækjendur. Nokkru síðar varð rómverska heims- veldið að beygja sig að fullu fyrir því, að Galiieinn hafði sigrað. Þá voru heiðnu hofin í Róm svipt þeim for- réttindum og stóreignum, sem þau og prestar þeirra höfðu notið. Það var þá sem Symmachus, háttsettur em- bættismaður og foringi rómverska há- aðalsins, fór á fund keisarans til þess að fá þessari ákvörðun hnekkt. Og kjarninn í málflutningi hans var sá, að leiðirnar í trúarefnum væru og hiytu að vera margar. Hverju skiptir það, með hvaða siðum hver og einn leitar sannleikans? spurði hann. Á einum vegi geta menn ekki náð fram til svo mikils leyndardóms. Ég hef stundum heyrt vitnað til þessara orða hins heiðna manns eftir að Arnold Toynbee dró þau fram og gerði þau nánast að sínum. Og jafnan heyrði ég til þeirra vitnað í þá veru, að þar væri að finna fyrirmynd að réttu viðhorfi kristinna manna nú. Þeim lægi mest á því nú að viðurkenna, að veg- irnir til hins mikla leyndardóms séu margir. Af einhverjum ástæðum hefur þess ekki verið getið í leiðinni, þegar bent var á vísdóm hins göfuga heið- ingja, að honum var svarað. Kristnir menn áttu líka leiðtoga, Ambrósíus. Hann samdi ritling til andsvara. Þar segir hann: Hvernig eigum vér að trúa yður, sem viðurkennið, að þér vitið ekki, hvað það er, sem þér dýrkið? Það sem yður er hulið, hefur oss verið gefið að þekkja. Því Guð hefur talað. Þetta, sem þér leitið með getgátum, það hefur Guðs vizka og sannleikur sjálfur leyft oss að komast að raun um. Vér (kristnir menn) höfum vaxið af þeirri ranglátu meðferð, sem vér höfum verið beittir, af skorti og píslar- vætti. Heiðnir menn telja, að trú þeirra verði ekki haldið uppi nema með ríkis- fé. Enginn hefur neitað heiðnum mönn- um um rétt til þess að dýrka guði sína á þann veg, sem þeir óska. Það eitt hefur gerzt, að jarðeignir voru af þei111 teknar, en afrakstur þeirra var reyndar ekki notaður í trúarlegu skyni. Kirkjan á ekkert nema trúna. Og hún ber ávexti. Auður kirkjunnar er umönnun fátækra. Látum þá (heiðna menn) telja fram, hve marga fanga hofin hafa keyP* iausa, hve marga fátæka þau hafa fætt, hve marga flóttamenn þau hafa styrkt, svo að þeir gætu bjargast. Á þessa leið svaraði kirkjan þá. Hun þarf ekki að blygðast sín fyrir Þa svar. Ef hún skyldi þurfa að blygðaS 90
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.