Kirkjuritið - 01.12.1976, Blaðsíða 10

Kirkjuritið - 01.12.1976, Blaðsíða 10
kristniboSa, norrænna, á þessari öld, enda kom og brátt í Ijós, hverrar virð- ingar hún naut á þessu móti. Að skilnaði var dr. Havas að því spurð, hvort hún væri tilleiðanleg að koma til íslands og kynna kristniboðs- starfið í Israel, ef boð bærist. Hún svaraði að bragði, kímileit eins og hennar er háttur: „Hví ekki það?“ — Snemma í nóvember kom hún svo. Kristniboðssamband Islands og KFUM kostuðu ferð hennar. Ekki voru bumb- ur barðar né háreisti ger út af komu hennar. Slíkt hefði henni sjálfri fallið illa. Einu dagblaði var þó gefinn kost- ur á að senda mann á fund hennar, en hvernig sem á því stóð, varð þó ekkert úr nema dauðaþögn. Aftur á móti fór allmikið af dálkum sama blaðs um þær mundir í að auglýsa og kynna bók, sem kvað öldungis ekki vera vinsamleg Gyðingum. En dr. Havas lét sér fátt um finnast, enda hafði hún í nógu öðru að snúast. Hún fór héðan heimleiðis þann 1. desem- ber s. I., og hafði þá flutt mál sitt a. m. k. fjórtán sinnum á fundum og samkomum í Reykjavík, Hafnarfirði, á Akureyri og í Skálholti. Dr. Aili Havas er enginn stórgripur að vallarsýn, næsta smávaxin og smá- fríð öll, en henni er líkt farið og öðr- um, sem bornir voru til mikillar köllun- ar. Hún er mikilla „sanda og sæva“, í andanum. íslendingi kynni að þykja hún áþekk síra Friðriki um margt. Hæruhvít og helgar rúnir í ásjónunni, augun ung og bjarmi í þeim, stund- um kankvísi. Minnið þrotlaus sagna- sjóður, ævin ólík öllum öðrum ævum, Guð ætíð við hendina, enda skal hann ráða ferðinni. Hið eina, sem kynni 248 að bresta og brestur raunar ætíð, er næðið, tómið til þess að sitja og hlusta og nema. Það, sem sett verður hér á blöð, er að mestu spjall hennar undir fjögur augu daginn áður en hún kvaddi ís- land, en sá dagur og það spjall voru ekkert einsdæmi þann mánuð, sem hún var hérlendis. Verði þinn vilji — Ekki veit ég, hvort þú kærir þi9 um að seðja forvitni mína um tildrög þess, að þú varðst kristniboði? segit hnýsinn. — Já, það er nú svo, anzar Ail> Havas. Það var þannig, að ég varð stúdent 16 ára, og ég vissi ekki alls kostar, hvaða námi ég skyldi snúa mér að. Ég hafði haft mikinn áhuga á stærðfræði og efnafræði. Ég hafði leiðbeint bekkjarfélögum mínum 1 stærðfræði, og ég vissi, að allar stúlk- urnar höfðu næstum óbeit á henni. Ég hugði því, að ekki væri eftirsóknarvert að fást við kennslu alla ævina. Ég gat ekki annað gert en beðið Guð að leiða mig. Eldri bróðir minn stúd- eraði guðfræði, og hann stakk upP á því, að ég skyldi fara að læra guð' fræði. En mér fannst það nú ekki vera neitt fyrir stúlkur. Þá bar svo til, að gestir komu heim, og þeir fóru að spyrja okkur systurnar, hvað við ætluðumst fyrir. Systir mín, sem var eldri en ég, varð stúdent sama ár- ið. Hún gat svarað því umsvifalaust, hvað hún vildi leggja stund á. í sömu svifum kom bróðir minn og sagð1- „Aili ætlar að fara að stúdera gu^'
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.