Kirkjuritið - 01.12.1976, Blaðsíða 42

Kirkjuritið - 01.12.1976, Blaðsíða 42
voru ógæfumenn og samúð þessa prests þekkti engin sóknarmörk á voru landi. Hinn 27. júní árið 1902 stóð brúð- kaupsdagur séra Sigurbjörns Ástvald- ar Gíslasonar og konu hans frú Guðrúnar Lárusdóttur, fríkirkjuprests í Reykjavík. — Börn þeirra urðu 10. Heimilið stækkaði því fljótt. En bú- skapur var stundaður og börnum þeirra haldið að vinnu, þegar þau höfðu aidur til, með skynsemd, til þess að þau skyldu létta undir með heimil- inu og auka þroska sinn. Þrátt fyrir þennan stóra barnahóp og mikla gestakomu á heimilinu, gaf húsfreyjan sér tíma til allmikilla rit- starfa og umsvifamikilla félagsstarfa. Séra Sigurbjörn lagði alla áherslu á, að frú Guðrún gæti notið sín á þess- um kjörsviðum sínum. Ber það vott um frjálslyndi langt á undan samtíð. Frú Guðrún varð sem kunnugt er bæ'arfulltrúi í Reykjavík, og hún var alþingismaður síðustu ár ævi sinnar. í þessari aldarminningu hlýt ég að geta um þann atburð, sem varð 20. ág. 1938. Þann dag fóru þau hjónin í bifreiðar- ferð um Árnessýslu í sólskins veðri, ásamt tveim yngstu dætrum sínum, sem voru frú Guðrún Valgerður og Sigrún Kristín, 18 ára. — Þá varð slysið í Tungufljóti. Bíllinn fór útaf á krappri beygju við brúarsporðinn á vesturbakka og kast- aðist í fljótið. Séra Sigurbjörn og bif- reiðarstjórinn komust Kfs af, en mæðg- urnar þrjár, sem sátu saman í aftur- sæti drukknuðu. Þessi helfregn vakti þjóðarsorg. Jarðarförin var líklega ein sú fjöl- mennasta, sem sést hefur hér á landi- Kisturnar voru fjórar, því að ung stúlka, tengd fjölskyldunni, var nýdáin. Tengdasonur sr. Sigurbjörns fylgdi þar systur sinni, eiginkonu og ófæddu barni til grafar. Við hina stóru gröf stóð séra Sigur- björn Ástvaldur, sorgarbarnið, og flutti mannfjöldanum enn vitnisburð um Drottin, sem hann mætti í djúpinu. Hörkveikur trúar hans var ekki slökkt- ur. Brákaði, skjálfandi, granni reyrinn, sem stóð þarna í þyngstu sporum, var ekki brotinn. Honum virtist haldið uppi af sterkri, ósýnilegri hendi. Skömmu síðar flutti hann prédikun í Dómkirkjunni. Kirkjan var yfirfull. — Yfirskrift og inntak ræðunnar: — Drott- inn var í djúpinu. Ég minnist síðustu samfunda okkar. Það var ekki löngu fyrir andlát hans, er bar að 2. ágúst 1969. — Það var í skrifstofu hans. Hann var orðinn 93 ára, óbeygt bak, en þrótturinn nú þorrinn. — Yfir dyrum skrifstofu hans og heimilis stóðu enn einkunnarorð hans: Sannleikanum trúr í kærleika. — Yfirskrift lífs hans og ævistarfs. Ég hafði víða fengið að standa við hans hlið. Við stóðum saman frammi fyrir altari Dómkirkjunnar á vígslu- stund, og síðar frammi fyrir altari Péturskirkjunnar í Rómaborg og grísk- kaþólskrar kirkju í Nasaret og í syna- gógu Gyðinga í ísrael. Og við stöðum hlið við hlið á Zíons hæð og horfðum út yfir borgina helgu, Jerúsalem og yf' ir til Getsemane-garðsins í rótum 0W' fjalls. — Og nú stóðum við í síðasta sinn hlið við hlið, — við skrifborð hans, snjáð eftir marga áratuga vinnu- slit. 280
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.