Kirkjuritið - 01.12.1976, Blaðsíða 67
lagðir, eða semja aðrar, unz allur hinn
kristni skilningur er höndlaður í hjart-
anu í tveimur liðum, en þeir eru trú og
kærleikur. Þeim má líkja við tvo sekki.
I sekki trúarinnar eru tvö hólf. i öðru
hólfinu felst það, sem vér trúum, að
vér fyrir synd Adams séum spillt,
syndug og fordæmd, Róm. 5 (Róm.
5:12), Sálm. 50 (Sálm. 51:7). I hinu
hólfinu felst það, að vér erum öll fyrir
Jesúm Krist frelsuð frá slíkri spilltri,
syndugri og fordæmdri tilveru, Róm. 5
(Róm. 5:18n), Jóh. 3 (Jóh. 3:16). Sekk-
ur kærleikans hefur einnig tvö hólf. i
öðru felst, að vér eigum að þjóna sér-
hverjum manni og gjöra honum gott
eins og Kristur hefur gjört oss, Róm.
13 (Róm. 13:8—10). i hinu felst, að
vér eigum að líða fúslega og þola alls
konar böl.
Þegar barn tekur að skilja slíkt,
má venja það á að taka eftir spak-
mælum ritningarinnar í því, sem
Predikað er, og segja þau foreldrum
sínum, þegar sezt hefur verið að borð-
um, eins og áður var siður um latín-
una, og setja því næst spakmæli ritn-
‘n9arinnar í sekkina og hólfin, líkt og
he9ar smápeningum, krónum og gull-
Peningum er stungið í vasann. Ef vér
hkjum sekk trúarinnar við sekk gull-
Peninganna, þá fara í fyrsta hólfið
þessi spakmæli, Róm. 5 (Róm. 5:12,
18): „Vegna syndar eins eru þeir allir
syndarar og fordæmdir,“ og Sálm. 50
(Sálrn. 51:7): ,,Sjá í synd er eg getinn
°9 I synd bar mig móðir mín.“ Það
eru tveir Rínargullpeningar í því hólfi.
hitt hólfið fara ungversku gullpening-
Urnir, svo sem þetta spakmæli, Róm 5
(Róm. 4:25): „Kristur er dáinn vegna
syndar vorrar og upprisinn vegna rétt-
lætis vors,“ svo og Jóh. 3. (Jóh. 1:29);
,,Sjá Guðs lambið, sem ber synd
heimsins." Það voru tveir ungverskir
gullpeningar í því hólfi. Þá má líkja
sekk kærleikans við sekk, sem silfur
er sett í. i fyrra hólfið fara spakmæli
um velgjörðir, svo sem Gal. 4 (Gal.
5:13): „Þjónið hver öðrum í kærleika,"
Matt. 25 (Matt. 25:40): „Hvað sem þér
gjörið einum þessara minna minnstu,
það hafið þér gjört mér.“ Það voru
tvær silfurkrónur í því hólfi. í hitt hólfið
fari þetta spakmæli, Matt. 5 (Matt.
5:11): „Sælir eruð þér, er þér verðið
ofsóttir mín vegna, „Hebr. 12 (Hebr.
12:6); „Drottinn agar þann, sem hann
að sér tekur.“ Það eru tvær silfur-
krónur frá Schreckenberg í því hólfi.“
(Silfur var unnið úr Schreckenberg í
saxnesku Erz-fjöllunum). Enginn haldi
sig of skynsaman og fyrirlíti slíkan
barnaleik. Þegar Kristur vildi fóstra
mennina, varð hann að verða maður.
Ef vér eigum að fóstra börn, þá verðum
vér einnig að verða börn með þeim.
Guð gefi að slíkur barnaleikur verði
vel leikinn. Það ætti að geta myndazt
á stuttum tíma stór sjóður kristinna
manna, og sálir orðið ríkar af Guðs
orði og þekkingu á Guði, unz þær sjálf-
ar gerðu þetta hólf að almennum stað
(locos communes) og létu hann rúma
alla ritninguna. Annars fer svo, að fólk
gengur daglega til predikunar og kem-
ur þaðan jafnnær aftur. Menn halda,
að ekki sé annað að gera en að hlusta
um stund, en dettur ekki í hug að læra
eða halda neitt af því sem þeir hafa
heyrt. Þannig heyrir margur maðurinn
predikanir í þrjú, fjögur ár, en lærir þó
ekki svo mikið, að hann geti svarað úr
einum lið trúarjátningarinnar, en þess
305