Kirkjuritið - 01.12.1976, Side 12

Kirkjuritið - 01.12.1976, Side 12
 Tvö penní, raunar þrjú — Var sú bók ætluð þeim, sem vildu verða kristniboðar? — Fyrir þá, sem voru fúsir að ger- ast kristniboðar, ef Guð vildi senda þá. Eftir það var ég fullviss um, að Guð ætlaði mér einhvern stað, en ekki vissi ég hvar. Finnska Kristniboðsfélagið rak kristniboð í Suður-Afriku meðal svertingja og svo í Kína. Þegar ég síðan kom heim til foreldra minna, sagði ég móður minni frá þessu. Hún sagði mér þá, að hún hefði mikið hugsað um kristniboð, þegar hún var ung stúlka, en síðan giftist hún, og af þeirri hugsun varð ekkert frekar. Ég átti þrjú systkin, sem voru eldri en ég, og hún sagði mér, að hún hefði einkum beðið þess, þegar hún gekk með mig, að Guð vildi senda annan hvorn eldri bræðra minna á kristniboðsakurinn. En þessu hafði hún aldrei sagt frá áður. Foreldrar mínir voru bæði trúuð, og nokkrir kristniboðar höfðu komið á heimili okkar, því að þau buðu gjarna heim ýmsum, sem orð fór af, að Guð notaði til að vekja fólk. Var þá komið á samkomum í skólanum. Þess má geta hér til skýringar, að faðir Ailiar var skólastjóri og móðir hennar raunar kennari. En síðan hefur hún orðið að nýju: — Móðir mín starfaði einnig mikið að kristinni boðun, m. a. í Kristilegu félagi ungra kvenna. En ég á þó ekki neinar sérstakar bernskuminn- ingar frá heimsóknum kristniboðanna eða frásögnum þeirra. En ég man, að við vorum stundum að leika okkur á vordögum í garðinum heima. Það var 250 leysing, og við bjuggum til læki, sem féllu inn undir hliðarbyggingu. Þar hugsuðum við okkur, að heiðingja- landið væri. Síðan gerðum við okkur litla báta og sendum þá með gjafif okkar, sem ekki voru nú stórar, ti1 heiðingjanna. Og Aili Havas hlær glatt. — Ég man, að einu sinni átti ég tvö finnsk penní, og þau sendi ég þarna niður. Og síðan eignaðist ég eit* penní í tilbót og hugsaði sem svo, að því gæti ég nú kannski haldið. En við nánari athugun taldi ég það ekki rétt, því að Guði átti að gefa alit. Og Þe fór það sömu leið. Litla systir mín sagði bræðrum mín- um frá þessu. Þá fóru þeir að athuga- hvort vatnið kæmi nokkurs staðar út undan húsinu. En þess sáust engin merki. Þar eru aurarnir enn. Og Þeir hlógu að mér, sem ætlaði að senda Þe til heiðingjanna. — Og enn hlær Ail>* því að hún er skemmtin og spaugsöm í bezta máta. Hún segist ekki hafa haft neinar efasemdir um það þá, að aurarnir kæmust til heiðingjanna. Hendur og fætur upp úr snjó Hún fjölyrðir ekki þessu sinni urT1 bernsku sína að öðru leyti, minnis* ekki á stríðið, frelsisstríðið, sem hófst árið 1917, en breyttist brátt í hatramm3 og grimmilega borgarastyrjöld nriillj hvítra og rauðra. Rússar börðust m® þeim rauðu. Þá var hún fjórtán ára, og vígvöllurinn var á næstu grösum- Lengi var heimabær hennar í víg|in unni. Hún vann á birgðastöð Þar

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.