Kirkjuritið - 01.12.1976, Side 39

Kirkjuritið - 01.12.1976, Side 39
Guðrún Lárusdóttir. Vröi að láta staðar numið vegna erfiðr- ar fjárhagsstöðu. Var þá hlutafélagið leyst upp. En Sr. Sigurbjörn gafst ekki upp. I~lann tók Bjarma að sér sem útgef- andi og ritstjóri og gaf hann út í tvo aratugi (1916—1935). Bjarmi átti stór- an vinahóp í landinu. 1 fyrsta eintaki Bjarma undir stjórn Sr- Sigurbjörns gerir hann grein fyrir atefnu blaðsins. Þar stendur m. a. Þetta: ’.Eins og að undanförnu mun blaðið 9anga í berhögg við vantrú og hjátrú, nverju nafni sem þær frænkur skreyta ai9, og hvorki hræðast hroka né vJ°n®*nl ..frjálslynda" flokksins, sem ' láta kirkjuna haga seglum eftir Verjum nýjum goluþyt. Samt sem áð- mun blaðið ekki styðja neinn „dauð- rett-trúnað, sem játar að vísu allar nrungar lúthersku kirkjunnar, en virðist kærulítill um allt safnaðarlíf. Eftir fremsta megni mun ég forðast allar deilur við einlæga kriststrúar- menn, þótt þeir hafi frábrugðnar skoð- anir, í einhverjum trúmálaatriðum, en skuldbind mig þó ekki til að láta blað- ið þegja við árásum þeirra á réttar kenningar kirkju vorrar.“ Auk ritstjórnar og útgáfu Bjarma skrifaði sr. Sigurbjörn ritgerðir og gaf út sem smárit, einnig nokkrar bækur frumsamdar. Sumt þýddi hann og gaf út. Ritað mál, sem eftir hann liggur á prenti, er æði mikið. En fullkomin skrá yfir ritverk hans mun ekki vera fyrir hendi. Fyrir utan hið frjálsa kirkjulega starf, hafði hann með höndum ýmis trúnaðarstörf. Hann var t. d. form. Barnaverndarráðs um skeið, skipaður í nefnd til að gera tillögur um upp- eldi vangefinna barna. Annaðist fanga- hjálp. Féhirðir líknarsjóðs íslands. For- maður sóknarnefndar dómkirkjunnar, í stjórn Hins íslenska Biblíufélags o. fl. o.fl. Meðal annarra mannúðarverka hans var að beita sér fyrir fjársöfnun til hjálpar finnskum börnum eftir lok síð- ari heimstyrjaldar. Var hann sæmdur finnskri orðu í viðurkenningar skyni fyrir það verk. Hann sótti 5 kirkjuleg alþjóðaþing erlendis og 6 samnorræn þing og um 20 trúmála- og líknarmálaþing á fjór- um Norðurlöndum. Hann var boðs- gestur ísl. kirkjufélagsins lútherska vestanhafs sumarið 1918. Hann var fulltrúi Biblíufélags Skotlands í 30 ár, og fulltrúi Breska og erlenda Biblíu- félagsins hátt á þriðja áratug. Áratugi var hann aðal-tengiliður milli 277

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.