Kirkjuritið - 01.12.1976, Page 46

Kirkjuritið - 01.12.1976, Page 46
Jesú nafni vi5 aðstæður, sem dæmafá- ar eru meðal íslenzkra Kristsmanna fyrr og síðar. Á einni af örlagastundum mannkyns var sagt, að aldrei hefðu jafn margir átt jafn fáum jafn mikið að þakka. Þao mun ekki fjarri lagi, að við kirkjunnar þjónar, sem heima sitjum í náðum, skuldum kristniboðum allra tíma áþekk þakkarorð. Jóhann Hannesson var einn hinna fáu. Enn var stefnunni fram haldið, er heim kom, leiðarljósið óbreytt, einn Drottinn Jesús Kristur. Við prestsþjón- ustu og margháttaða fyrirgreiðslu á Þingvöllum, við samantekt aragrúa greina og ritgerða, við tilþrifamikla þátttöku í félags-, menningar- og mannúðarmálum hverskonar var séra Jóhann Hannesson hinn sami á íslandi og hann áður hafði verið meðal fram- andi þjóða, grundvöllur tilveru hans og óhaggaður. Slíkur var séra Jóhann enn, er hann árið 1959 var skipaður prófessor við guðfræðideild Háskóla islands, en því starfi gegndi hann með- an heilsa og líf entust. Af litlu skal manninn marka. Mér gleymast seint fyrstu kynni við prófess- or Jóhann, en þau tókust, er ég settist á skólabekk hjá honum haustið 1961. Um sama leyti hafði ég ráðizt í það að safna að mér börnum innan skóla- aldurs og kenna þeim að stauta og draga til stafs. Hér var meir unnið af kappi en forsjá, enda ,,skólahúsnæðið“ ekki annað en herbergiskytra í kjall- araíbúð okkar hjóna. Ekki leið á löngu þar til prófessor Jóhann hafði spurt mig margs og þar á meðal um lífsvið- urværi fjölskyldunnar. Innan fárra daga brá hann mér á eintal, spurði hvort ég 284 ekki vildi þiggja raunverulega kennslu- stofu við nýtilegar aðstæður, húsaleiga nánast táknræn. Ég stamaði fram ein- hverju, sem átti að heita þakkarorð, — fékk velfarnaðaróskir, — og í fyrsta sinni hið sérkennilega bros prófessors Jóhanns, hlýtt og innilegt, blandið glettni, allt að því gáska, sem gerði hann í einni svipan að jafnaldra og lagsbróður. Löngu síðar, er ég hafði starfað í nefndu húsnæði um árabil og bjóst til að þakka eigendum gisting- una, komst ég að því, að vistarvera þessi var alls ekki til leigu að jafnaði- Þar hafði prófessor Jóhann um vélt, óbeðinn og að eigin frumkvæði, til þess eins að styðja vandalausan og honum ókunnan nemanda sinn í lífs' baráttunni. Þetta var engan veginn einsdæmi' Þannig var prófessor Jóhann, — mað- urinn, sem okkur stundum þótti ,,Pr°' fessor" í orðsins hefðbundnustu °g gamansömustu merkingu, annars hug' ar, djúpt sokkinn í vangaveltu um °' segjanleg efni. Ég hygg ég hafi aldrei kynnzt jafn margslungnum persónuleika. Skemmti' legastur var prófessor Jóhann, þegar fjallað var um almenna trúarbragð3' sögu. Þar virtist þekking hans nokkurn veginn ótæmandi, enda maðurinn a eigin raun gjörkunnugur ýmsum helztu trúarbrögðum samtímans og furðuleg3 næmur á innviðu þeirra. Sama mál1 gegndi um hugmynda- og heimspek1' sögu. Þar kom enginn að tómum k°^' um í garði prófessors Jóhanns. tJ171 ræður við efablandna og áhyggjusam3 trúskiptinga létu honum hverjum manm betur. Mátti einu gilda, hvort þær fórU fram í kennslustundum, á sólskins

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.