Kirkjuritið - 01.12.1976, Page 54
indið um, ,,að Kristur dó vegna vorra
synda samkvæmt Ritningunum og
hann var grafinn, og að hann er upp-
risinn á þriðja degi samkvæmt Ritn-
ingunum.“ I. Kor. 15. Hvernig er unnt
að veita sakramentin, skírn og kvöld-
máltíð, árum saman og neita þessu?
Og hvers vegna var Kristur að láta
Jóhannes skíra sig iðrunarskírn, ef
það er svo hræðilega Ijótt að nefna
synd við skírnarlaug lítils barns?
Aumkunarverður var lami maðurinn,
tollheimtumennirnir einnig og bersynd-
uga konan, ef Kristur hafði ekki vald
til að fyrirgefa syndir. Hví var hann í
öðru orðinu að kalla syndara, segja
sögur af týndum sauðum og sonum
og hinu að bjóða börnum inn í ríki
sitt? Hverjir voru þeir, sem áttu að
snúa við og verða eins og börnin?
Hvers vegna hafnaði manns-sonurinn
(Kristur) mönnum, sem þóttust hafa
hjúkrað honum hungruðum og þyrst-
um, nöktum, sjúkum og í fangelsi, en
bauð þá velkomna, er vissu ekki ti1
þess, að þeir hefðu vitjað hans né
hjúkrað honum?
Og hvar koma þeir menn niður, sem
hafa flogið svo hátt, að þeir þurfa ekki
á að halda þessum orðum Krists:
„Þetta er líkami minn, fyrir yður gef-
inn. Þetta er sáttamálablóð mitt, sem
út er hellt fyrir marga.“?
G. Ól. Ól.
Næsta hefti Kirkjurits verður vonandi fljótlega á ferð. Kaupendur eru
beðnir að virða vel, hversu síðbúið þetta hefti varð, en til þess lágu
ýmsar orsakir, sem ekki verða fram taldar. All mikið af efni, sem eðli-
legt hefði verið að birtist í síðasta hefti 1976, bíður næsta heftis, en við
það varð með engu móti ráðið. Má þar m. a. telja frásögn af biskupa-
þingi, bókafregnir og fréttir af ýmsu tagi. í næsta hefti verða ennfremur
m. a. grein um guðfræði hinna ungu kirkna eftir síra Gunnar Kristjáns-
son, — predikun eftir H. Thielicke og þáttur til minningar um síra
Gisle Johnson, kristniboða, eftir þýzkan prest, vin hans.
292