Fanney - 01.05.1908, Side 33
F A N N E Y.
31
Kisa hjá myndasmið.
&
|ENGI hafði kisu langað til að eignast mynd af sér
og börnunum sínum þremur. Hún lagði því af stað
með þau einn góðviðrisdag og fór að hilla mynda-
smið að máli. Samdist svo með þeim, að hann lofaði að
taka myndina, en hún átti í staðinn að eyða öllum rottum
í húsi hans, er gerðu
þar mikinn skaða.
Seltist hún nú á
bekk og greip fram-
löppunum utan um
tvo ketlingana og hélt
þeim föstum með klón-
um, en sá þriðji varð
að standa á aftur-
löppunum framan við
bekkinn og setja sig
sjálfur í stellingarnar.
»Sitjið þið nú kyr«,
sagði kisa, þegar hún
var búin að skipa
þeim reglulega niður.
»Nú megið þið hvorki
hreyfa löpp né lið og
ekki dingla skottinu minstu vitund. Hvað ert þú að glenna
glirnurnar upp í loi'tið, Músíus litli, þó þú sjáir íiðrildi?
Skiftu þér ekkert af því. Vertu kyr með kampana, Rottína!
Og þú, Mjáus, breiddu úl framlappirnar og haltu systkinum
þínum kyrrum með þeim. Deplið svo ekki augunum, heldur
lioríið beint fram, — svona«.
»Eruð þið tilbúin?« spurði myndasmiðurinn.
»Mjá«, sagði kisa.
Og myndin var tekin og hún varð svona eins og þið
sjáið, el' þið lílið á myndina þarna. Er hún ekki góð?