Fanney - 01.05.1908, Page 34

Fanney - 01.05.1908, Page 34
32 F A N N E Y. Sund. EIN af þeim fögru og nyt- sömu íþróttum, sem forfeður (3^® okkar á söguöldinni iðkuðu mjög mikið, var s u n d. Getum við víða lesið um það í forn- söguin okkar. En þegar kjarkur og manndáð þvarr á niðurlæg- ingartímum þjóðarinnar, þá lögð- ust listir og íþróttir niður. En nú er þetta aftur að lifna og lagast. Æskulj^ður Islands er að vakna og farinn að iðka fornar íþróttir af nýju; eigum við þegar nokkra menn, sem skara fram úr öðrum, svo sem glímu- og allraunamanninn Jó- hannes Jósefsson á Akureyri og mesta glímumann Reykvíkinga, Hallgrím Benediktsson, og sund- manninn Lárus Rist á Akureyri, er synti yfir þveran Eyjafjörð af Gddeyrartanga síðastliðið sumar. Sund er ekki einungis fögur íþrótt, heldur einnig mjög holl og þörf, og jafnvel nauðsvnleg öllum þeim, er á sjó ferðast. Hversu miklu færri menn mundu ekki drukna, ef sundkunnátta væri almenn og unglingar lærðu sund, þá er þeir liafa náð þeim aldri og þroska, að þeir séu færir um að stunda og iðka sundnám. Aðrar þjóðir standa okkur Islendingum framar í þessari í- þrótt, sem svo mörgum öðrum, og þá ekki livað sízt náfrændur okkar, Norðmenn; þeir stunda íþróttir afmiklu kappi og verður vel ágengt. Árlega hafa þeir í- þróttamót og sýna þar kunnáttu sína. Myndin, sem hér er sýnd, er af einu slíku íþróttamóti; þar eru sundmenn að sýna á- liorfendum, úr hve mikilli liæð þeir geti slokkið niður í vatnið. Utan á turninum eru þrírpallar og af þeim stökkva sundmenn- irnir. Við sjáum mann, sem heíir stokkið út af miðpallinum og svífur nú eins og fugl í lausu lofti og kemur bráðum niður í vatnið, en þar sér á höfuðið á öðrum manni, sem áður hefir stokkið. Sumir eru svo leiknir í þessari list, að þeir stökkva af efsta pallinum, sem er uppi undir þakbrún. Svona langt erum við íslend- ingar ekki enn þá komnir, en ef ungir piltar og stúlkur verja nokkru af tómstundum sínum til íþróttaiðkana, þá mun þeim verða vel ágengt, og þá vex upj) í landinu ný kynslóð með lieil- brigða sál í hrauslum líkama.

x

Fanney

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fanney
https://timarit.is/publication/463

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.