Leiftur - 01.01.1915, Side 10

Leiftur - 01.01.1915, Side 10
8 L E I F T U R er rétt fyrir augum þeirra, þótt í björtu sé. Eg minnist þess eigi, að eg hafi séð nokkuð skrásetl um þessi fyrirbrigði. En þó eru þau til. Hefir það komist inn í þjóðtrúna, að sá, er hyrfi á þenna hátt sjónum annara, væri feigur. Þó er það alls eigi einhlítt að svo sé. Það er að eins einu sinni, að þetta hefir borið fyrir mig, og boðaði það eigi feigð. Hvort það hefir verið fyrirboði annars læt eg ósagt, þótt mér þyki það eigi ólíklegt, þegar eg lít til þess ástands, er hugur minn var í, þegar sjónhvörfin ui'ðu. Eg segi frá því síðar í frásögninni: »Kveldið fyrir brunann mikla í Reykjavik nóttina 25. apríl 1915«. Og með tleiri sögnum verður siðar gerð ná- kvæmari grein fyrir þessu. Ef einhverjir hefðu ábyggileg- ar sagnir um sjónhvarf, væri mér mjög kært að fá þær. Gagnstætt sjónhvaríi er það, sem nefna mætti sýnir. Þegar þær bera við, sézt það, sem eigi er raunveru- legt á þeim stað, er sýnin ber fyrir. Hefir þjóðtrúin fært það undir feigðarboða, en langt er frá því að það sé ætíð rétt. Qft er að ræða um einfalda fyrirboða, eða þá tvífara, ef til eru. Loks má geta þess, að nú er »spíritismi« að verða að nýrri og sérstakri fræðigrein. Þó að andatrú og ýms önnur dulrænistrú sé jafngömul mannkyninu, þá er það þó ekki fyr en á 2 síðustu mannsöldrum að slíkt hafi verið tekið til visindalegra rannsókna. Mér væri því mjög kært að fá góðar og vottfestar sagnir frá tilrauna- fundum. Einnig sagnir um tvifara, svefngöngur, svefn- töl, þungahvarf, sjónhvarf, ósjálfráða skrift, ljóðagerð eða aðrar framkvæmdir í leiðslu. Enn fremur sagnir um hugskeyti, hugboð, ratvísi, fyrirboða, aðsóknir, svip- sýnir, forspár og yfirleitt alt, sem dulrænt er, meðan það verður eigi skilið sem eðlilegur atburður út frá núverandi þekkingarstigi. Treysti eg, að mér og ritinu verði sýnd sú velvild að sendar verði lil min góðar sagnir um þessi efni með lullu nafni þess er sendir, og að til allra heimilda sé vandað svo vel sem unl er. Eigi þarf að setja fyrir sig, þótt áfátt kunni að vera

x

Leiftur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leiftur
https://timarit.is/publication/483

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.