Leiftur - 01.01.1915, Blaðsíða 26

Leiftur - 01.01.1915, Blaðsíða 26
24 L E I F T U R þá Sigurlín:- »Það er leiðinlegt fyrir hana Ingveldi, að það skuli vera þetta hræðilega óveður, þegar þessi eina dóttir er að flytja alfarin úr foreldrahúsumcc. Þórdís sat og studdi höndum undir kinnar. Henni þótti þá, að hún sæi sorta fram undan sér og virtisl eins og ill- viðrið lemja utan um sig. Sá hún þá upphleyptan veg liggja fram undan sér, er hallaði litið eitt upp á móti. Hún sá dökkleitan hest teymdan eftir veginum. Gekk hann fyrir vagni. I vagninum sá hún líkkistu með á- klæði yfir. Virtist henni hún sjá margt fólk i líkfylgd- inni. Var Friðgeir sonur hennar hægra megin við vagn- inn. Sjálfri henni virlist, að hún liði áfram vinstra megin við vagninn. Svo hverfur sýnin. Þá stóð Þórdís upp og gekk ofan. Segir hún þá um leið í hálfum hljóðum eins og við sjálfa sig: »Það er ekkert fram undan nema eintómt myrkur — myrkur og dauði«. Friðgeir og Ingibjörg giftusl 18. des. næst á eftir. En Ingibjörg deyði, í Borgarnesi, að nýafstöðnum barns- burði 26. okt. 1906. Þórdís fylgdi tengdadóttur sinni til grafar. Sá hún þá nákvæmlega og raunverulega hina sömu sýn og áður, þegar líkfylgdin fór upp úr Skalla- grímsdalnum á leið til Borgarkirkju. Sigurlín, mágkona min, sagði mér, að þegar hún hefði séð svipbrigðin á Þórdísi, og heyrt hana tala við sjálfa sig, þegar hún gekk niður, hefði hún þegar spurt hana að því, hvað fyrir hana hefði borið. Sagði Þórdís Sigurlínu þá frá sýn sinni eða vitrun eins og hér segir. Brúöför og jaröarför. Sögn Þórdísar Guömundsdóttur á Ytra-Rauðamel. Handrit ísleifs kennara Jónssonar. Frá þvi að eg hafði verið vinnukona á Grímsstöðum í Álftaneshreppi á Mýrum, hjá þeim hjónum Níels Eyjólfssyni og Sigríði Sveinsdóttur, hafði verið náin i

x

Leiftur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leiftur
https://timarit.is/publication/483

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.