Leiftur - 01.01.1915, Blaðsíða 15

Leiftur - 01.01.1915, Blaðsíða 15
L E I F T U R 13 gerði í húsi því, er Oddi nefnist, eign IJorsteins M. kennara Jónssonar. Seint um haustið réðst unglings- mað.ur, Þórarinn Páll að nafni, sonur Sveins bónda Pálssonar a Dallandi i Húsavik, í unglingaskólann á Bakkagerði. Ilann var mesti efnismaður, hneigður til skáldskapar, óvenju hraustbygður og karlmenni mikið. Góður drengur var hann, vel þenkjandi og brennandi af framfaralöngun, vandaður og vinsæll af öllum þeirn, er honum kyntust. Ilann hafði fæði í húsi I'orsteins kennara og las þar öllum stundum, sem liann var ekki i skólanum, en svaf i húsi því, er Bjarg nefndist, eign Hannesar Sigurðssonar hreppstjóra, sem var hið næsta þeim megin götunnar, svo sem rúma 30 metra frá húsi Þorsteins kennara. Sunnudaginn 9. febrúar gekk Þórarinn þessi inn í Goodtemplararegluna á Bakkagerði, að líkindum mest fyrir áhrif Þorsteins kennara, sem er öflugur styrktar- maður bindindismálsins. Var hann þó i nokkrum efa um það áður, hvort hann ætti að ganga í stúku; áleit þess ekki þörf, þar sem hann aldrei liafði bragðað á- fengi, en þótti ])ó hinsvegar rétt al' sér að styrkja góðan félagsskap. Að kveldi þess sama dags, um kl. 10, fór hann eins og hann var vanur einsamall til hvilu sinnar út i Hanuesarhús. Var þá veður gott. en dimt af nóttu, þvi tungls naut ekki. Sagði hann þá, er hann kom i Hann- esarhús, að þegar hann hefði komið ofan á brautina niður af Þorsteinshúsi, liafi hann séð undurskært Ijós fyrir augum sér í nokkur augnablik. Þótti honum það ólíkt öllum þeim ljósum, er hann hingað til hafði séð, og taldi það víst, að það hefði eigi gelað komið frá neinum næstu húsum og væri hvorki skrugguljós né hræfareldur eða neilt annað ljós, er hann gæti skilið af hverju kæmi. — Daginn eftir sagði hann mér frá inn- töku sinni i Regluna og mintist þá jafnframt á ljóssýn þessa, sem hann kvaðst ekkert skilja i. Bæddum við um það lítið eitt einslega og heyrðist mér þá helzt á

x

Leiftur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leiftur
https://timarit.is/publication/483

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.