Leiftur - 01.01.1915, Blaðsíða 17

Leiftur - 01.01.1915, Blaðsíða 17
L E I F T U R 15 sagði einnig frá slíkri ljóssýn, er hún hafði séð nokkru fyr þetla sama kveld á sömu stöðvum. En þenna morgun fanst Þórarinn Sveinsson örendur á götunni, nákvæmlega á sama stað, er hann hafði séð ljósið sjálfur fyrir réttum þremur vikum og þær kon- urnar sáu sin ljós. Hafði hann orðið bráðkvaddur, er hann gekk út um kveldið. Þóttust menn þá sjá, livað Ijósin á götunni hefðu boðað. Var nú helzt búist við því, að Þórarinn heitinn yrði jarðsettur í Húsavik, þvi þar var bæði faðir hans bú- settur og svo hafði móðir hans verið jörðuð þar og íleiri skyldmenni, en fyrir sérstök atvik varð samt ekki af því. Var hann jarðsunginn í Desjarmýrarkirkjugarði 11. marz að viðstöddum fjölda fólks. Hélt Þorsteinn M. kennari Jónsson húskveðju i skólahúsinu, einkar lag- lega, en eg líkræðu i kirkjunni. Daginn áður hafði gröt' lians verið tekin í kirkjugarðinum, kom þá enn ný ljóssýn til sögunnar, er l'ólkið á Desjarmýri þóttist þá l'yrst sjá, livað hefði merkt. Seint í septemberm. hauslið 1912 var Guðrún Högna- dóltir, kona Jóns Þorsteinssonar hónda á Desjarmýri, á gangi meðfram kirkjugarðinum að kveldi dags. Var þá að eins lítið eilt farið að skyggjá. Henni varð litið til kirkjugarðsins og sá hún þá tvö Ijós nálega í miðjum garðinum; annað stórt og skært, en hitt minna til hliðar við stóra Ijósið. Virtist henni þau bæði vera sem Ijós- kúlur, er báru lítið eitt yfir jörðu. Horfði hún á þau góðan tíma og sá að þau gátu ekki verið náttúrleg ljós. Flýtti hún sér þá inn, en leit þó við áður en hún gekk inn i bæjardyrnar; en þá voru þau hortin. Sagði hún þá manni sinum og öðru heimafólki frá því og bar því öllu saman um, að það hafi verið vandlega á sama stað og gröf Þórarins lieitins var tekin, að stærra ljósið l>ar yfir. Sama daginn og Þórarinn Sveinsson dó, fæddist and- vana meybarn á Bakkagerði. Kom faðir þess til min kveldið áður en Þórarinn var jarðaður og bað mig að

x

Leiftur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leiftur
https://timarit.is/publication/483

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.