Leiftur - 01.01.1915, Blaðsíða 33

Leiftur - 01.01.1915, Blaðsíða 33
L E I F T U H 31 Sýn o<*■ heyrn. „Hvaö er*t jvi'i að gera hér?“ Sögn I'órdísar Guðmundsdóttur á Ytra-Rauðamel. Fyrif nærfelt 20 árum bar þá sýn fyrir mig í vöku, að eg sá Ólöfu dóttur mína. Hún var þá ung, en í sýninni virtist mér hún fulltiða stúlka. Stóð hún í húsi, sem eg kannaðist ekkert við. Með hliðvegg hússins var raðað mörgum tunnum, og var Ólöf eitthvað að hogra við þær. Kom þá maður inn, sem eg þekti jqfnskjótt að var Gestur Guðmundsson, þá ungur, en sýndist nú fulltíða/ Gekk hann með hægð að hlið Ólafar, tók utan um hana og sagði með hægð: »Hvað ert þú að gera hér?« Nálægt 12 árum siðar giftist Ólöf þessum sama manni, og fóru þau að húa, en ekki sá eg þetla hús, er eg sá í sýninni. Vorið 1913, þegar þau höfðu verið yfir (5 ár í hjónahandi, llultusl þau húferlum úr Álfta- neshreppi í Mýrasýslu að Ytra-Rauðamel i Hnappadals- sýslu. IJar er timburhús. Jafnskjólt og eg kom þar í húrið, fanst mér sem eg hefði komið þar áður. Mér virtist eg kannast svo vel við slærðina og svo tunnurn- ar, sem stóðu þar fram með hliðinni. En þá kannaðist eg alt í einu við að þetta var sama húsið og fyrir mig har í sýn fyrir nærfelt 20 árum.

x

Leiftur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leiftur
https://timarit.is/publication/483

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.