Leiftur - 01.01.1915, Blaðsíða 28

Leiftur - 01.01.1915, Blaðsíða 28
26 L E I F T U H Tveim árum síðar giftust þau Jón og Marta. Eg var við vigsluna. Sá eg þá að alt fór eins fram og fyrir mig hafði borið í sj'ninni, þegar brúðhjónin gengu út í kirkjuna, bæði að þvi er snerti búning þeirra, og hvar mæður þeirra gengu. En eftir 12l/2 árs sambúð deyði Jón Oddsson. Kom þá bin sýnin nákvæmlega fram við jarðarförina. Marta stóð við kirkjugaflinn, og leiðið var þar rétt fyrir anstan. Stærra var það en vanaleg leiði, sökum þess að kistan var mikið skreytt og kassi ntan um hana, svo að fyrirferðin var mikil. Eg sagði bráðlega frá sýninni, svo að hún var orðin kunn áður en nokkuð af þessu kom fram. Grr-öfin. Sumarið 1874 var fólk frá Reykjahlið í Mývatnssveit við heyskap vestan við vatnið. Hafði það bækistöð sína í Hrauney. Húsíreyjan þar, Sigríður Jónsdóttir, eldaði fyrir það matinn. Meðal fólksins frá Reykjahlíð voru einu sinni þær líræðradæturnar Jakobína Pétursdóttir, nú ekkja eftir Jón Stefánsson — Þorgils gjallanda — og Jakobina Sigurgeirsdóttir, nú prófastsfrú að Rorg á Mýrum. Þennan dag voru eldaðar baunir. Potturinn stóð á búrgólfinu. Yar það moldargólf. Sigríður sat á hækjum sínum við pottinn og jós úr honum upp í skálar. Pær nöfnur voru þar bjá henni. Alt í einu sér Jakohina Pétursdóttir að nafna hennar náfölnar, riðar við og gengur út. Hún fylgdi henni þegar eftir og spurði, hvað fyrir hana hefði borið. Jakobína vildi ekkert úr þessu gera, en hin gekk því fastar að. Loks segir þó Jakobína Sigurgeirsdóttir nöfnu sinni frá því, að lnin hafi séð gröf opnast í búrgólfinu, rétt við hliðina á Sigriði. Hefði sér orðið svona bilt við það. Þegar þetta bar að, var Sigríður við sæmilega heilsu. En um haustið veiktist hún og deyði, 45 ára gömui,

x

Leiftur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leiftur
https://timarit.is/publication/483

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.