Leiftur - 01.01.1915, Blaðsíða 16

Leiftur - 01.01.1915, Blaðsíða 16
14 L E I F T U R honum, sem hann áliti það yfirnáttúrlegan fyrirburð, er mundi boða sér eilthvað. Var hann þó að allra dómi, er til hans þektu, alveg laus við það, er hjátrú kallast, og alls eigi myrkfælinn. Sunnudaginn 16. febrúar var svo al'tur haldinn fundur i stúkunni. Hélt Þórarinn þá fyrstu tölu sína, lýsli ljós- sýn sinni inntökukveldið og kvaðst nú skilja þýðingu hennar. Taldi hana fagran fyrirboða þess, að hann væri nú kominn í góðan félagsskap og lýsti því yfir í áheyrn fundarmanna, að hann einsetti sér að vinna Good- lemplarareglunni alt það gagn, sem hann framast megnaði. Á fundi þessum gaf hann félaginu peningagjöf, eigi all-litla, og á næstu fundum á eftir flutti hann tölur, laglegar af viðvaningi, og sýndi með þvi að honum var alvara með að verða nýtur starfsmaður félagsins, ef honum hefði orðið lengra aldurs auðið. En það sann- aðist hér, sem fyr, »að eigi er lif lengra en léð er«. Að kveldi þess 3. marz, kl. á 11. tímanum, gekk Þórarinn Sveinsson hraustur og kátur út úr Þorsteins- liúsinu og ætlaði enn sem fyr til hvílu sinnar í Hann- esarhúsið, en hann lcorn eigi þangað um kveldið. Var því enginn gaumur gefinn jiaðan, þvi hann hafði slund- um komið seint i háttinn og eigi allsjaldan sofið i Þor- steinshúsinu, er vont var veður. En kl. á 12. tímanum þessa sömu nótt, sá gömul ekkja á Bakkagerði, Anna Hallgrímsdóltir frá Njarðvík, einkennilegan ljósglampa leggja inn í herbergi sitt, þar sem hún lá glaðvakandi í rúminu. Leit hún þá út og virtist henni það stafa frá ljóshnetti skærum á götunni niður af Þorsteinshúsi. Voru þá allir aðrir i fasta svefni í þorpinu. Anna var þá slödd i húsi þvi, er nefnist Svalbarð, utarlega í þorpinu og gat því tæplega séð Ijós á götunni nema það bæri hátt yfir jörðu. Er hún kona guðhrædd og greind og talin sérlega vönduð og sann- orð. Sagði hún slrax um morguninn frá því er fyrir hana hafði borið um nóttina. Önnur kona greind og trúverðug í þorpinu, Jónína Hjörleifsdóttir að nafni,

x

Leiftur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leiftur
https://timarit.is/publication/483

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.