Leiftur - 01.01.1915, Blaðsíða 35

Leiftur - 01.01.1915, Blaðsíða 35
LEIFTUR 33 er var i miðið, hvarf sjónum hennar. Telur hún þá víst, að hin sama sé feig. Hugði hún í fyrstu að það væri Kristrún, en komst þó þegar að því, að það var Guðný, er gekk í miðið. Guðný dó á Raufarhöfn þann 11. jan. 1836 næst á eftir og var jörðuð að Skinnastað. Þegar eg var unglingur heyrði eg þessa sögn, og þá næstu á undan, í Þingeyjarsýslu. En þar voru allar sagnir um Guðnýju svo ljósar hjá eldra fólkinu. Yar hún nokkurskonar dýrlingur hjá samlíðarfólki sinu. Stafaði það frá sorgum hennar, hinni miklu skáldgáfu, óvenju gáfum og mannkoslum. Þo rgerður Runólfsdóttir var talin dulspök, og virðist allmikið hafa borið á hinu sama hjá sumum afkom- endum hennar. Sagnir hafa gengið um það, að Guðný dóttir hennar hafi verið skygn og forspá. A það bendir meðal annars, að þegar séra Jón faðir hennar, siðar prestur á Grenjaðarstað, var prestur í Stærraárskógi, var eitt sinn talað um það, hve fagurt væri að líla yflr fjörðinn. Þá segir Guðný: »Austur fyrir Evjafjörö aldrei skal eg fara«. Svo þegir hún um stund hugsi og segir svo; ' »l*ar mun pó af guöi gjörð gjörvöll lukka min á jörö«. Páll 1 Þorbergsson var að nokkru leyti fóstursonur séra Jóns á Grenjaðarstað. Hann kvæntist Hildi dóttur hans þegar þau voru bæði ung. Sigldi hann svo til Kaupmannahafnar og fékk veitingu fyrir læknisumdæmi Vesturamtsins. Æltlaði hann að setjast að í Stykkis- hólmi, og sækja konu sína þegar norður. En rétt við komu Páls lil landsins, druknaði hann af báti á Rreiða- firði. — Páll var skáldmællur og talinn óvanalega efni- legur maður í öllum greinum. 3

x

Leiftur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leiftur
https://timarit.is/publication/483

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.