Leiftur - 01.01.1915, Side 19

Leiftur - 01.01.1915, Side 19
L E I F T U R 17 Klukkan tvö, þá um nóttina, tók konan mín létta- sótt. Eg fór þegar að leita hesta til að sækja ljósmóður- ina. Gekk eg norður fyrir túnið og var á báðum áttum, hvort heldur skyldi leita hestanna vestur í Holtin eða norður með Urriðaánni. Koldimt var. Loft var kafþykt, og það gekk á með krapaskúrum. Eg óttaðist þvi mjög, að mér yrði mikil leit úr hestunum. En vegna ástæc^- a1 anna var eg í sárustu öngum mínum. Eg réð þó af að leita vestur Holtin. Þegar eg var að leggja á stað í þá átt, sá eg Ijósbirtu norður með ánni, um 600—700 m. frá mér. Ljósið var að lit og birtu líkast rafmagnsljósi. Geislinn var um 3—4 m. á lengd og lá þvert fyrir mér. Varaði sjm þessi um 5—10 sek. Rétt við geislann, min megin við hann, sá eg glögglega að tveir hestar stóðu þar saman. Hljóp eg þegar út í myrkrið og á þenna sama stað. Þar rak eg mig á tvo hesta, er stóðn hlið við hlið, og voru það hestarnir, sem eg ætlaði að hafa til ferðarinnar og þurfti nauðsynlega að finna. Þelta var því einkennilegra, er hestar þessir héldu al- drei saman. Ljósmóðirin átti heima í Sjrðra-Hraundal. Lá vegur- inn þangað fram hjá Grímsstöðum. Þegar eg kom á melana, austan við Grímsstaðatúnið, var hesturinn, sem eg teymdi, fram með hægri hlið á hestinum, sem eg reið. En þá bar svo við, að framan til við hestinn, sem fram með hljóp, sá eg glögglega Indriða lndriðason. Brjóstmynd hans bar upp fyrir hestmakkann. Skærri birtu sló í kringum Indriða, svo að eg sá hann mjög berlega. Indriði var þá dáinn fyrir réttu ári síðan. Heitmey hans, er deyði á undan honum, var Jóna El- isabet, alsystir min, en systkinabarn við konu mina. Þess má einnig geta að Indriði hafði verið mjög hjálpfús, og hestamaður hinn mesti.

x

Leiftur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leiftur
https://timarit.is/publication/483

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.