Leiftur - 01.01.1915, Qupperneq 34
32
L E I F T U R
Sjónhvarí.
Moldarhrúgan.
Sögn Guðnýjar húsfreyju Níelsdóttur á Valshamri. Henni sagði
móðir hennar, Sigriður Sveinsdóttir prests Níelssonar. En Sig-
ríði sagði fóstra hennar og móðursystir, Kristrún Jónsdóttir
prests á Grenjaðarstað, fremur en Hildur systir Kristrúnar.
Það mun hafa verið í tið þeirra s)rstra, að hjón átli
að gefa saman á Grenjaðarstað. Tvær konur sátu bar í
stol'u ásamt brúðurinni, sem þær höfðu nýskautað.
Brúðurin sat í miðið. Þá kom merkiskona inn til þeirra,
er Þorbjörg hét. Hún gekk til kvennanna og heilsaði
þeim, en fór fram hjá brúðurinni. Rétt á eftir spyr
önnur konan Þorbjörgu, með leynd, hvers vegna hún
hafi eigi heilsað brúðurinni um leið og þeim.
»Eg sá eklci nema ykkur tvær«.
»Hún sat þó á millum okkar«.
»Þar sá eg eklcert nema dálitla moldarhrúgu, en
þegar eg leit síðar við, sá eg brúðurina, og heilsaði
henni þá.
Mánuði síðar dó unga konan.
Uuðný Jónsdóttir liverfur móöur sinni.
Sögn Guönýjar húsfreyju Nielsdóttur á Valshamri.
Jón prestur Jónsson og Þorgerður Runólfsdótlir á
Grenjaðarstað voru foreldrar Guðnýjar, er giftist Sveini
presti Níelssyni, Kristrúnar, er giftist Hallgrími presti
Jónssyni á Hólmum, og Hildar Johnsen í Húsavík,
síðar i Kaupmannahöfn.
Sumarið 1835 bar svo við, að þær systur voru allar
staddar á Grenjaðarstað hjá foreldrum sínum. Eilt sinn
voru þær á göngu úti á túni. Þorgerður stóð á hlaði,
og horfði á dætur sínar. Sá hún þá alt í einu, að sú,