Prestafélagsritið - 01.01.1931, Page 153
Prestafélagsritið.
Á föstudaginn langa.
141
- Ö §—:—: 1—h i —. 11
- ® - j idj. J.. ....
fiT\ J J # J # ° * 9 9 J J
VT7 • • í. e ^ J
P P P \ j 1 '~i 1 l I U ii hall-ar helgum deg .. J i , 1 r p i r p p- 1 1 .1 á Haus-a-skelj-a - stað J i \H\ i -Ti J
(V« • - • i -j w -
j-T-f {9 | Q f f \
: ..... , •t t - j h h—I- -
í gegnum móÖu’ og mistur
ég mikil undur sé.
Eg sé þig koma, Kristur,
með krossins þunga tré.
Af enni daggir drjúpa,
og dýrö úr augum skfn.
A klettinn vil ég krjúpa
og kyssa sporin þín.
Þín braut er þyrnum þakin,
hver þyrnir falskur koss.
Ég sé þig negldan nakinn
sem nfðing upp á kross.
Ég sé þig hæddan hanga
á Hausaskeljastað. —
Þann lausnardaginn Ianga
var líf þitt fullkomnað. —
Ég bíð, unz birtir yfir
og bjarminn roðar tind.
Hvert barn, hvert ljóð, sem Iifir,
« skal luta krossins mynd.
Hann var og verður kystur.
Hann vermir kalda sál.
Þitt líf og kvalir, Kristur,
er krossins þögla mál.
Þú ert hinn góði gestur
og Guð á meðal vor, —
og sá er bróðir beztur,
sem blessar öll þfn spor
og hvorki silfri safnar
né sverð í höndum ber,
en öllu illu hafnar,
og aðeins fylgir þér.
Þú einn vilt alla styðja
og öllum sýna trygð.
Þú einn vilt alla biðja
og öllum kenna dygð.
Þú einn vilt alla hvíla
og öllnm veita lið.
Þú einn vilt öllum skýla
og öllum gefa frið.
Að kofa og konungshöllum
þú kemur einn á ferð.
Þú grætur yfir öllum
og allra syndir berð.
Þú veizt, er veikir kalla
á vin að leiða sig.
Þú sérð og elskar alla,
þó allir svíki þig.
Ég fell að fótum þínum
og faðma lifsins tré.
Með innri augum mínum
ég undur mikil sé.
Þú stýrir vorsins veldi
og verndar hverja rós.
Frá þínum ástareldi
fá allir heimar ljós.
Davíð Stefánsson
frá Fagraskógi.