Syrpa - 01.03.1914, Page 7

Syrpa - 01.03.1914, Page 7
H0 □ lö □ (S A G A) Efiir J. MAGNÚS BJARNASON. Fyrsti Þáttur. □ □ □ c 3 C 3 □ (Framhald). hefði þá veriö í burtu næstuin fimm sólarhringa. Gat það verið, hugs- aöi eg, aö hann ætti einhver mök við kynblendinga eða Indíána? Gat það verið, að hann væri ásthrifinn af, eða á einhvern hátt bendlaður viö kynblendingastúlku, sem hét Madeleine Vanda, og sem hlaut nú að vera hálf fertug að aidri, fyrst hún var tuttugu og tveggja ára gömul haustið 1869? Að líkindum hafði hún samt ekki sent lausa papírsmiðann, sem var í vasabók- inni, því undir orðunum sem áhann voru rituð, stóðu upphafstafirnir: E. og T. — En mér þóttu orðin, sem voru á þeim miða, í meira lagi grunsamleg og benda á það, að Arnór væri viðriðinn einhvern vond- an félagsskap; því væri miðinn til hans (sem eg efaði ekki) þá var honum skipað að gjöra ,, a ð r a t i 1- raun“ þann 14. dag mánaðarins — og sú t i 1 r a u n gat verið í því fól gin, að brjóta upp peningaskáp, eða fremja einhvern svipaöan glæp. Svo hverfur hann einmitt þann 14. úag júnímánaðar, og er marga daga 1 burtu; og þegar hann loksins kem- ur heim aftur, vill hann engum sebja, hvert hann hafi farið, eða hvað hann hafi verið að sýsla, en verður þögull og þunglyndislegur og næstum mannfælinn, þegar frá líður. —Auðvitað gat þetta alt ver- ið meinlaust, en þrátt fvrir það var það samt næsta grunsamlegt og — frámunalega kynlegt. Aldrei kom mér samt til hugarað efa það, að Arnór væri í insta eðli sínu góður og ráðvandur maður — og því lengur sem eg kyntist hon- um, því betur féll mér við hann; og eg var alveg viss um það, að ef hann væri viðriðinn einhvern mis- indisfélagsskap, þá hefði hann leiðst inn í hann óafvitandi eða á móti vilja sínum. Og nú verð eg að segja frá dá- litlu æfintýri, sem eg rataði í nokkru eftir að eg hafði horfi í vasabók Arnórs. Það var á laugardags- kvöld. Þann dag hafði Arnór ekki farið til vinnu sinnar. Um hádegið, þegar við sátum undir borðum, kom lítill drengur, sem leit út fyrir að vera af enskum ættum, og kvaðst þurfa að tala við hann. Arnór gekk út með honum, og kom að vörmu spöri aftur, og var að sjá mjög óró- legur. Og því meir, sem á leið dag- inn, því órólegri varð hann.

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.