Syrpa - 01.03.1914, Blaðsíða 17

Syrpa - 01.03.1914, Blaðsíða 17
í RAUÐÁRDALNUM 143 g'amll 0’Brian,og var hann aö raula fyrir munni sér uppáhalds vísuna sina: ,,En þeir fitnuöu’ eins og svín, Ef þeir fengu brennivín eða romm", Mér kom nú alt í einu til hugar, aö eg skyldi láta herra O’Brian vita alla málavöxtu, og reyna aÖ fá hann í lið með okkur íslendingunum. Eg þóttist vita, aö hann væri hug- djarfur maður og mesta karlmenni; og þar að auki haföi hann einu sinni látiö þaö í Ijós viö mig, aö sér væri mjög hlýtt til Arnórs og bjóst egþví við, að hann mundi veröa fús til að rétta okkur hjálparhönd. ,,Sæll vertu, herra 0’Brian!“ sagði eg, þegar hann kom upp á loftsvalirnar til mín. ,,Sæll vertu, sonur minn!“ sagði hann glaðlega. ,,En er það, sem ntér sýnist? Ert þú þá orðinn að nátthrafni eins og eg?“ ,,Eg býst við að svo sé,“sagði eg; en til þess eru mjög gildar á- stæður“. ,,Það veit trúa mín, aö þú þarft ekki að segja mikiö meira til þess að eg veröi allur aö forvitni,“ sagöi O’Brian. ,,Því þaö er ein af höfuð- syndum okkar íranna, aö við viljum alt vita um hagi náungans.“ ,,Herra O’Brian,11 sagði eg, ,,það er mér mjög mikiö áhugamál, aö mega seöja íorvitni þína í þetta sinn, og segja þér frá æfintýri því, sem eg rataöi í á þessu kveldi, því eg er viss um það, aö einn af vinum mínum helir hag af því, aö þú fáir að vita það sem allra fyrst. “ ,,Eg er þér vissulega þakklátur, sonur minn“ sagði O’Brian kítni- leitur; ,,en sem ærlegur maður verð cg aö láta þig vita þaö í tæka tíö, aö við írarnir erum fæddir meö þeim ósköpum, að geta aldrei þag- að yfir neinu, sem leynt á að fara“. ,,Eg þakka þérfyrir aö segja mér þetta, herra O'Brian,11 sagði eg, ,,því hver veit nema eg kunni aö færa mér það í nyt síðar nieir. En nú sem stendur aftrar það mér ekki á minsta hátt frá því, að segja þér leyndartnál mitt. “ ,,Nú segöu mér það þá strax í allra dýrlinga nafni, sonur minn góöur, og vertu eins stuttoröur og þér er framast mögulegt, því eyru okkar íranna eru þeim annmarka háö, aö þau þola hvorki exordium né ú 11 e g g i n g u n a, heldur að eins textann. “ Eg sagði nú herra O’Brian í fánt orðum alt eins og var: að skugga- legur kynblendingar hefði komið um kvöldið og talað lengi við Arnór, að Arnór hefði litlu síðar farið austur yfir brúna, og eg í humótt á eftir honum, að eg hefði séð tvo hálf- drukkna kynblendinga leiða hann inn í bjálkahúsið inn ískóginum, að eg hefði hejrnt þar læti mikil og seinast ofboðslegt angistar-óp, að eg væri hræddur um að Arnór heföi gefið þetta hljóð af sér og væri í miklum háska staddur, að eg hefði hlaupið heim til þess að fá hjálp til að ná honum úr höndum kynblend- inganna, en að þeir Kjartan og Björn væru enn ekki kornnir heim. Og eg gleymdi ekki að geta um liinn stóra, og grimma hund, sem hafði elt mig. — Og gamli O’Brian hlýddi á sögu mína með mestu eftir- tekt, en gretti sig samt ofurlítið víð og við, og klóraði sér ákaflega und- ir hökunni. ,,Það veit sá heilagi Patrekur, aö
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.