Syrpa - 01.03.1914, Page 18

Syrpa - 01.03.1914, Page 18
144 SYRPA þú hefir ekki sagt mér þetta of snemma,“ sagði O’Brian, þegar hann var búinn að heyra alla söguna, ,,en nú er eldti til setunnar boBið, sonur minn; viö veröum aö fara hið skjótasta og sækja piltinn. Bíddu mín hérna fáein augnabiik á meðan eg skrepp inn til aö láta kerlinguna mína vita, hvert eg ætla aö fara. Ogspíi mín er sú, aö hún niuni ekki telja þaö úr, aö eg takist þessa ferö á hendur.11 Að því mæltu gekk hann inn í húsiö, en kom afturaðvörmu spori. Hann haföi nú stóran flókahatt á höföi, og var í skósíðri regnkápu, hélt á afargildum, kvistóttum eiki- staf í hendinni, og var að sjá hinn vígamannlegasti. ,,Þá skulum við nú leggja af staö, sonur minn“, sagöi hann, ,,og vita, hversu þeir eru góöir heim að sækja, kynblendingarnir þarna fyrir hand- an ána“. ,,En ættum við ekki aö bíöa eftir þeim Kjartani og Birni, svo viö yrðum fjórir saman?" sagði eg,þeg- ar við vorum aö fara ofan stigann. ,,Óneitanlega væri þaö skemti- legra, að hafa þá með sér í svona leiðangur,“ sagöi O’Brian; ,,en mér er ekki vel við það, að bíða eftir þeim, því þaö er alveg óvíst, að þeir komi heim fyr en eftir næsta Nóaflóð“. ,,Það skal vera eins og þú vilt,“ sagöi eg. ,,Þaö ei' rétt gjört af þér sonur minn, að lofa mér að ráða,“ sagði O’Brian og steig stórum skrefum (þó skakkur væri) í áttina til brúar- innar. „Gömlii svínin eru jafnan reyndari en grísirnir. En eins og eg tók fram áðan á þröskuldi ræðu minnar, þá álít eg það ekki vitur- legt, að bíöa þangaö til landar þín- ir koma heim, því þeir eru oft æðilengi úti á kvöldín, en brýn nauösyn ber tii þess, að við fáum að sjá framan í kynblendingana okk- ar eins fljótt og auðið er. Og svo hafa spakir menn sagt mér það, að íslend ingar væru alveg eins sein- ir til að fara að heiman og þeir eru seinir aö koma heim. Þeim er jafn- an við brugðið fyrir seinlæti. Og í því eiga þeir aö vissu leyti sam- merkt við okkur írana, því allur heimurinn veit, að við erum í mörgu mjög seinir. Við erum, til dæmis, sérlega seinir að launa gott meö illu, og ilt með góðu. Og höfum við, hvað það snertir, jafnan getað mætt prestunum okltar á miðri leið, því þeir hafa þráfaldlega boðið okk- ur að vera seinir til hins fyrra, en fljótir til hins síðarnefnda. En við höfum átt svo erfitt með að skilja kenninguna um það, að rnaður eigi að launa ilt með góðu, og af því hefir seinlæti okkar, í þeim sök- um, að miklu leyti stafað. — Og þegar eg hugsa um það, þá dettur mér í hug atvik nokkurt, sem fyrir kom á írlandi, þegar eg var dreng- ur: Þar var prestur í minni sveit (blessuð sé minning hans), sem aldrei þreyttist á að brýna það fyrir ungum og gömlum, sérhverj- um kristnum manni (og konu) bæri að launa i 1 t m e ð g ó ð u. En í sömu sveitinni var strákhnokki einn, ærsabelgur hinn mesti, sem Patrek- ur hét, en alment kallaður P a t. Einu sinni lenti Pat i allra mestu illindi við strák, sem var mikið eldri en hann, og börðu þeir að lokum hvor á öðrum svo aö á þeim sást. Nokkru síðar hilti presturinn Pat litla íi förnum vegi, sezt niður á

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.