Syrpa - 01.03.1914, Page 24

Syrpa - 01.03.1914, Page 24
150 SYRPA ,,Nei, maðurinn sem liggurþarna beið hér á meðan“. ,,Var hann þá búinn að verða fyrir slysinu ?“ ,,Nei, hann meiddist rétt eftir að við komum heim“. ,,En hafði hann þá ekki töluvert í kollinum ?“ ,,Eg er búinn að segja þér, að hann hafi verið fullur“, sagði Gór- iot; ,,en veiztu það, að þú ert far- inn að spyrja mig eins og ósvífinn lögmaður spyr vitni í glæpamáli?“ ,,Þetta er meira en satt,minn góði herra Góriot“, sagði O’Brian, ,,og sýnir það, að þú ert maður prýðis- vel skýr. En þér að segja, þá var eg frá upphafi minna vega til þess ætlaður að vera málafylgjumaður, en heimurinn ' gjörði mig að lokum að ökumanni“. ,,IIeyrðu, herra Góríot!“ kallaði rödd uppi á loftinu — og það var kvennmannsrödd, framúrskarandi hvell og óviðfeldin. ,,Hvað viltu, Marie?“ sagði Gór- iot og horfði upp í loftið. ,,Herra Góriot“, sagði röddin, ,,eg gleymdi að segja þér frá því,að hann Lebas kom hingað í kvöld, á meöan þú varst í burtu, og rétt á eftir kom ókunnugur piltur, sem fékk hann til að fara með sér suður í St. Boniface. Þeir voru nýfarnir út um bakdyrnar, þegar þið komuð heim“. ,,Því sagðirðu þetta ekki fyr, .Marie?“ sagði Góriot byrstur. ,,Herra Góriot, eg gleymdi að geta um það; enda hugsaði eg að það væri ekkert áríðandi11, sagði Marie, og var nú fram úr öllu hófi skrækróma. ,,Áríðandi?“ sagði Góriot ill- hryssingslega; ,,það var bara svona áríðandi, að það ætlaði ekki að kosta okkur meira né minna en sjálft lífið!“ ,,Blessi mig!“ htópaði O’Brian, leit upp í loftiö og gretti sig; ,,það veit sá heilagi Patrekur, aö eg varð því feginn, að heyra þetta. Og eg vil glaður taka undir nteð hinum vitra Salónion konungi og segja: ,Tími cr til að pegja og tími til aö tala'. — Jafnframt vil eg biðjafyrir- gefningar á því, að hafa haldið vöku fyrir heiðvirðu kvenfólki. Og um leið Vil eg bjóða þér góða nótt, frú Góriot, og vona eg að þú softr vært það sem eftir er nætur!“ Og síð- ustu orðin sagði hann eins hátt og hann gat, e;ns og hann væri að tala við einhvern í mikilli fjarla',gð. ,,Þetta er ekki hún frú Góriot“. sagði annar kynblendingurinn önug- lega: ,,það er þjónustustúlkan hún Marie“. ,,Blessi mig!“ sagði O’Brian. ,,Alt af hendir mig einhver skyss- an! — En hljóti sá verðlaun, sem vinnur til. Og heiður sé þeim, sem heiður heyrir. — Stúlkan, hver sem hún er, hefir létt nijög þungri byröi af hjarta mínu, því eg trúi því, sem hún sagði, og eg veit nú með vissu, að pilturinn — hann Arnór — er ekki í þessu húsi. — Eg þakka þér herra Góriot, fyrir góðar viðtökur, og vil gjarna biðja þig að misvirða það ekki við mig, þó eg hali verið nokkuð hátalaður hér inni, og hafi ekki í öllum greinum hegðað mér eins og hæverskum gesti er sam- boðið. En okkur írunum liggur hátt rómur og þykjum á stundum nokkuð óhefiaðir. — Að því getum við ekki gjört. — Og eg vona að þér sé það nú Ijóst, að eg hafði gilda ástæðu til að hugsa, að pilturinn

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.