Syrpa - 01.03.1914, Qupperneq 27

Syrpa - 01.03.1914, Qupperneq 27
í RAUÐÁRDALNUM 153 veriö, og lá rúmfastur í rúman hálf- an mánuB. Ekki vissi eg, hvaö að honum gekk, en hann haföi enga. matarlist og kvartaöi um sfiran verk fyrir brjóstinu. Frænka mín gat þess til, aö veikindi hans stöfuöu af einhverri innvortis-meinsemd, og vildi hún endilega láta vitja læknis. Þaö vildi Arnór meö engu móti. Hann sagöi aö sér mundi bráöum batna, því þaö, sem aö sér gengi, væri aö eins ílugkveisa, sem hatin ætti vanda fyrir. Og var því alveg hætt við að sækja lækni. En hon- um var hjúkraö eins og hægt var. Einn dag, skömmu eftir að hann lagðist, var hann sýnilega mjög þungt haldinn. Þá um kvöldið, þegar eg var einn inni hjá honum, baö hann mig aö skreppa fyrir sig sem snöggvast vestur á Common- stræti (Henry Avenue). ,,Það er lítiö hús,“ sagöi hann, ,,að sunnan veröu í götunni og skamt fyrir vestan Princess-stræti. Þaö er engin tala yfir dyrunum á þessu húsi, en það er auðþekt á því, að þakið er kollótt og kring- um þaö er hvítmáluö rimagiröing. Og þar aö auki er spjald á veggn- um skamt frá götudyrunum, og stendur á því nafn húsráöanda, sem er: Frú Colthart. ‘ ‘ Eg kannaðist strax við húsiö, þegar eg heyrði lýsinguna á því. ,,Hvern á eg nö finna þar fyrir þig?“ sagöi eg. ,,Spuröu eftir frú Colthart, og láttu hana vita, aö eg sé ekki frísk- ur. “ ,,En ef hún er nú ekki heima,“ sagði eg, ,,hvað þá?“ ,,Biddu þá þann, sem til dyranna kemur, aÖ skila því til hennarv“ sagði Arnór; ,,en láttu engan hér í húsinu vita, hvert þú ætlar aö fara“. Eg hét honum því. Svo fór eg strax af staö vestur aö litla húsinu á Henry Avenue, og drap þar á dyr. ÞaÖ var lítill dreng- ur, sem opnaði dyrnar og kom út til mín. Og sá eg aö það var sami drengurinn, er komið haföi ískakka húsiö og spurt eftir Arnóri, stuttu eftir aö eg settist þar að. Eg heils- aöi honum, og spurði hvort frú Colthart væri heima. Hann sagði aö hún væri heima, en hún væri mjög starfbundin. ,,Eg kem meö skilaboö til henn- ar“, sagöi eg. „Frá hverjum?" sagði drengur- inn. „Frá ungum manni, sem á heima á Point Douglas". „Er það Arnór?“ sagði drengur- inn lágt. „Já“, sagði eg. „Viltu gjöra svo vel og bíöa eitt augnablik11, sagði drengurinn. ,,Eg ætla aö láta mömmu mína vita þaö“. Hann hljóp svo inn í húsiö, Og kom að vörmu spori aftur og sagði að mamma sín vildi að eg kæmi inn. Hann vísaöi mér inn í stofu, sem var næst framdyrum hússins. Þar voru fyrir tvær konur —önnur á aö gizka hálf-þrítug, en hin um fertugt eða rúmlega þaö — og sátu þærviö stórt borö og voru aÖ sníða mjög vandaÖ klæði í kjól. Eg sá strax aö þetta voru konurnar, sem Arnór hitti á Broadway-stræti,kvöldiö sem eg veitti honum í fyrsta sinni eftir- för. Og eg þóttist vita, að önnur hvor þeirra (aö líkindum sú yngri) væri konan, sem eg haföi nokkrum sinnum séð koma út úr þessu húsi, meö hvítt sjal á heröunum, og tala
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Syrpa

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.