Syrpa - 01.03.1914, Side 29

Syrpa - 01.03.1914, Side 29
í RAUAÐÁRDALNUM 155 ,, Skrítiö nokku8!“ sagCi frú Colthart. ,, Viljiö þiö láta mig- skila n'okkru til hans?“ sagöi eg og sýndi mig líklegan til að fara. „Gjörou svo vel að bíða fáeinar mínútur, íi meðan eg skrifa nokkr- ar línur til hans,“ sagði unga kon- an. Hún gekk út úr herberginu, og voru hreylingar hennar mjög mjúklegar. Hún var fagurlega vaxin, hárið hrafnsvart og mikið, eti hálsinn svanhvítur, og skein af henni allri mikill unaðsþokki. Drengurinn sem hafði fylgt mér inn, gekk út íi efti.r henni. Og vor- um við frú Colthart því ein eftir í herberginu. „Gjörðu svo vel að setjast,“ sagði frú Colthart og benti mér á stól, því hingað til hafði eg staðið fram við dyrnar. Þegar eg var seztur horfði hún á mig litla stund þegandi, eins og hún væri að reyna til að sjá það á svip mínum, hvernig lundareinkenni mín væru, svo lagði hún alt í einu frá sér skærin, sem hún hafði hald- ið á, og settist gagnvart mér. Hvað ertu gamall?“ sagði hún. ,,Eg er nýkominn á seytjánda ár- ið,“ sagði eg. ,,Þú ert stór vexti eftir aldri, og skilningur þinn er að líkindum þroskaður að sama skapi.“ ,,Ekki fylgisl það æfinlega að,“ sagði eg. Nei, ekki æfinlega, en það kem- ur oft fyrir. — Og mér lízt svo á þig, að þú sért mjög vel gefinn bæði til sálar og líkama.“ Eg þóttist vita, að hún segði þetta i einhverjum sérstökum tilgangi, °S eg einsetti mér að vera var um mig. Eg vissi, að það er jafnan í- sjárvert, að verða fyrir fagurmælum ókunnugs fólks. Og eg mundi vel eftir sögunni hans Benjamíns Franklins um manninn, sem þurfti að livetja exina sína,og fékk dreng- inn til að snúa hverfisteininum. ,,Eg þakka þér, frú mín“, sagði eg, ,,en eg er hræddur um að eg eigi ekki svona mikið lof skilið. Að minsta kosti liefi eg aldrei orðið þess fyr var; að nokkur maður hafi álitiö mig meira en í meðallagi greindan“. Frú Colthart brosti ofurlítið, og það brá fyrir einkennilegum glampa í augum hennar. ,,Nei, eg var ekki að fara með neitt skjall“, sagði hún; ,,eg sagði bara eins og’ mér fanst vera. En auðvftað getur mér skjátlast. Samt ætla eg að treysta því, að skilning- ur þinn sé svo skýr, að mér sé ó- hætt að tala við þig um alvarlegt málefni, sem eg ber fyrir brjósti11. „En að líkindum ber eg ekkert skyn á það málefni“, sagði eg. „Eg er einmitt viss um að þú ber mjög gott skyn á það“, sagði frú Colthart, „því það snertir aðallega vin þinn, hann Harnó. Eða eruð þið ekki góðir vinir?“ „Jú, við erum góðir vinir“, sagði egf- „Eg býst við að hann sé vel gef- inn að mörgu leyti og í alla staði sérlega ráðvandur. En er hann samt ekki eitthvað undarlegur? Er hann ekki frenutr veikgeðja og í- myndunargjarn?11 ,,Mitt álit er það“, sagði eg, „að Arnór sé prýðisvel gáfaður og góð- ur maður. Hann er að vísu mjög fíitalaður og óframgjarn, og virðist stundum veta díilítið undarlegur, en veikgeðja held eg hann sé ekki“. (Framhald.)

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.