Syrpa - 01.03.1914, Page 31

Syrpa - 01.03.1914, Page 31
GAMLAR MINNINGAR 157 engan sá eg fara jafn verklega aö slætti; hann var lengi lausamaöur, var kaupaniaöur á sumrum, en vann lítið á vetrum, nokkra síðustu vetur æfi sinnar stundaöihannbarna- kenslu, einkum suöur í Borgarfiröi, og var viöurkendur hinnbezti kenn- ari; var mjög í aflialdi hjá Mýra- mönnum: t. d. Kristopher á Stóra- Fjalli og Halldóri í Gröf, báöir merkismenn. Eg hef áður getið þess, aö Guðnnindur hélt skáldskap sínum lítt fram, og kvaö ekkimikiö að því mér var kunnugt; einkum orti liann tækifærisljóð, og töluvert mun hafa veriö til af þeim eftir hann. Hann var ekki fljótur aö yrkja við tækifæri, bar tilþesseink- um að hann var mjög vandvirkur á kveðskap sinn, orti sjaldan án þess aö grunda það, um þaö bar vott, alt sem eg heyröi eftir hann. Flest af því sem eg lærði af kveð- skap Guömundar, fyrir meir en 40 árum, er nú gleymt og glataö. En að gefnu tilefni næstliðinn vetur, hugsa&i eg, aö halda því uppi, sem enn er ógleymt; það er aö eins sýn- ishorn þess, aö þaö nuin sönnu næst er eg hefi sagt hér aö framan um skáldskaparhæfileika Guömundar. Eftir að Guömundur var af æsku- skeiði og fluttur frá æskustöðvum sínum, var hann einhverju sinni aö sumarlagi á ferð við Mælifellsíí, varð honum þá ljóö þetta af munni: Nú er mér öll sú gleði gleytnd sem glumdi við þenna berjatanga, þá nam eg barn með börnum ganga og vissi’ ei að mæöan mér var geymd En, æ hver þekkir það eymdadjúp í sem eg hefi náö að hrapa, síöan barnslundar- helgum -hjúp hjarta mitt nauöugt varö aö tapa. Einhverju sinni var Guöm. á ferÖ í Skagafiröi og reiö fram hjá mer- hryssi. sem ekki gat staðiö upp vegna megurðar; þá kvaö hann stöku þessa: Harðlyndur er herra þinn, hryssan vanmáttuga; hann er eins og hafísinn, heiptug mergjar suga. Guðm. kvað um stúlku þessa vísu: Hifmbjarta hylur kinn haddar- svarti -lokkurinn stýflast hartnær straumur þinn stóru hjartans slagæöin. Það var einhverju sinni, aö tilrætt varð um, hve mjög, aö hreppstjórar misbeittu valdi sínu á hinum fátæku, þá kvaö Guöm. þessar stökur: Hreppstjóranna flýgur frægö þó fæstir kanni vizkuslóöir, hafi þeir annars aura nægÖ eru þeir sannarlega góöir. í dyggöaþroti sviptir sátt svona brotalaust fram ana, veldissprota veifa hátt og vilja rota smælingjana. Það bar til einherju sinni aö mönn- um varð tilrætt um íþróttir, og taldi hver það til, er hann þóttist bezt til fær; GuÖm. sat hjá, og heyrði á tal manna; þegar þeir höfðu lokiö um- tali sínu segir Guöm.: ‘Gymnastikk’ og glímur, þiö gjarnan megiö lofa, jeg mun flesta jafnast við aö jeta, drekka og sofa —. Fá eg vildi fullan kút fús þá skildi bíöa, og h’onum fylgdi haus af hrút þá, held eg þildi’ aö stríöa. —

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.