Syrpa - 01.03.1914, Síða 34

Syrpa - 01.03.1914, Síða 34
160 SVRPA Vörumst brokkiS veraldar á völtu snúnings hj^li, þetta’ er okkar eilífðar undirbúnings sk(5!i. Frá Steiná í Svartárdal, var sel- staða á hálsi þeim er lág á millidal- anná, var þar mikið og goit búfjár- land. í selinu bjó nokkuir ár maður að heiti Pétur Þórðarson. Þegar á- búendaskifti urðu á Steiná, vildi binn nýi landsdrottinn, að Pétur færði þaðan bygð sína; ilt þótti Pétri það en varð þó að þoka. Á sléttunni, örskotsleið frá selinu, var kringlótt- ur toppmyndaður hóll, eigi ólíkur fornmannahaugum; hann varnefnd- ur Einbúi. Um hann kvað Guðm. stef þau sem hér fara á eftir, og kallaði þau „Einbúavísur“: 1. Þú stendur hér og þögull ert, þó að brimöldur tímans ströngu farga vildu þér fyrir löngu álítur þú það einskisvert; einveran þig ei hrellir hót hér á klökugum fjallagranda, alt fram á tímans aldamót eins og bjargvættur muntu standa 2. Nágranni þinn var neyddur brott, þvínákaldan félags andahræddist en þú í leyni’ að öl!u hæddist hugur þinn sýndi ríkan vott; saztu því fastar sem að hinn sýndi þollyndis biðlund smærri, hvorki bugar þig hóllinn minn hót né gjafir, nei, því fer fjarri. 3. Þannig líður þú skin og skúr skeitandi lítið heimsins glaumi, þú ert eins og í þungum draumi herra þínum samt hlýðinn, trúr, megna’ ei þinni raska ró, ráðsnilli heims né mannádóma, sí-vakir þú, en sefur þó í, segulefklum jökuldróma. Um kerlingu sem var að drekka brennivín orti Guðni. vfsu þessa: Hafði strút úr heilum klút hugði sút að stilla; sat í hnút og saup á kút synda pútan illa. Guðm.heyrði einhverju sinni kveð- skap, sem honumUíkaði ekki, og kvað þá þessar stökur: Hugmyndin er skyni skerð skerðist kvæðagaman; titta neglir meður mergð mergð af göpum saman. Fyrirlítur upplýst öld óðar þvætting fúlan heimskan ein þér greiðir gjöid og gefur fast á túlan. Guðm. varð eigi gamall maður; sá varð endi æfidaga hans, að hann v'arð úti í snjóbyl, á hálsinum milli Steinár í Svartárdal og Bollastaða í Blöndudal. Lík hans var fiutt að Steiná, setn var heimili hans. Með- an það stóð uppi, dreymdi stúlku á bærium að hann kæmi á glugga yfir rúmi hennar, og kvæði vísu þessa: ,,Eg varð nokkuð ölvaður æfistrengur slitinn minn kemst eg ekki’ í kórinn inn kvíðir litlu drengurinn“. Síðan var líkkistan færð til kirkju; varð þá það, að kórdyrnar rúnniðu hana ekki, og var hún látin standa á bekkjum í framkirkju meðan lík- ræðan var flutt. Ekki ætla eg, að Guðm. væri níð- skældinn eða léti til sín heyra, ó- vandaðan kveðskap; hann var alt of hreingerður til þess, og vandaður að háttum sínum. Þó heyrði eg eftir hann þfjár eða fjórar vísur,

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.