Syrpa - 01.03.1914, Síða 36

Syrpa - 01.03.1914, Síða 36
162 SYRPA Það er það eina sem við getum gert“. sagði hún og varp öndinni. Drengurinn svaraði og sagði: ,,Nei, mamma; það skulum við ekki gera; við skulum heldur halda á- fram. Við vitum hvert pabbi ætlaði með okkur; við vitum hvað hann ætlaði að gera. Við skulum halda áfram og gera það sem hann ætlaði að gera og, ef mögulegt er,gera það betur. Við skulum halda áfram“. * Austurloftið glitraði í gullnu geislabaði og ljósrákir teygðu sig langt upp á hvelfinguna. Enn þá var hálfrökkur umhverfis okkur. Þó sá eg hvar hestarnir voru á beit í fjórðungs mílu fjarlægð. Drengurinn reis á fætur og glæddi til eldinn. Að loknum morgunverði tók hann skóflu úr vagninum. Við hjálpuðum honum til að taka gröf- ina. Við lögðum líkið á ábreiðu og vöfðum utan um það með ólum, að Indíána sið. Svo létum við það síga niður í gröfina. Eg sá drenginn jafna yfir leiðið með skóflublaðinu. Eg sá hann skera fangamark föð- ur síns á fjöl, fæðingardag hans og dánardægur. En auðséð var að liann var þessu óvanur. Og eg sá hann reisa fjölina á leiði föður síns. * Eg sá drenginn spenna alla fjóra hestana fyrir vagninn og hjálpa bræðrum sínum og systrum að kom- ast upp í hann. Eg sá hann hjálpa móður sinni til að klifra upp eitt hjólið svo að hún kæmist í sæti sitt. Og eg sá hann hlaupa upp Iéttilega og setjast við hlið hennar. Eg sá hann taka aktaumana hisp- urslaust og veifa svipunni yfir hest- unum, svo að hvein í, um leið og hann beitti þeim vestur á bóginn. Drengurinn hafði lent í raun og þrenging. En hann hafði ekki látið undan síga. Á einum degi hafði hann skilið við bernsku brek sín og orðiö að manni. Og tíminn hefir sýnt að hann varð að sönnum manni. En hvað olli þessari breytingu ? Það var sorgin og ábyrgðin á baki þess sem með kunni að fara. Sunnublómið. (Sunflower) Það er til margra hluta nytsam- legt. Nýlega er farið að nota það við byggingu herskipa og þykir ó- missandi. Stofninn er mjög líkur þvottasvampi, kemst í samt lag aft- ur, þó að honum sé þjappað saman, þegar takinu er slept og getur hald- ið ísérógrynnum af vatni. Úr þess- um stofnum er búin til þófi eða flóki, líkt og dúkur væri. Þessum dúk er vandlega troðið á milli tveggja stál- veggja í hliðum skipsins. Þó núað kúlur fari í gegnum báða veggina og millifóðrið sem um var getið, þá er það svo fjaðurmagnað, eða þenjanlegt,að það hleypur fyrir opið og lokar því, svo að lítið vatn eða ekkert kemst inn í skipið um langa stund. Sunnublómið er einnig þó fáir viti, notað við vindlagjörð. Rússar rækta það mikið. Úr fræ- inu fæst gómsæt kvoða og afgang urinn er bezta skepnu fóður. Stofn- vefurinn er líkur silki og búa Kín- verjar til úr honum dýrindis dúka. Á Nýja Englandi halda menn að sunnublómið útrými malaríu. Það mun alment haldið, að sunnublómið snúi jafnan bikarnum móti sólu og af því hefir það hlotið nafnið; en það er ekki nema hjátrú eða mis- skilningur.

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.