Syrpa - 01.03.1914, Side 44

Syrpa - 01.03.1914, Side 44
170 SYRPA áður, þann 6. hafði Clinton hepnast að gera snarpa atlögu að virkjum tveimur, sem voru þröskuldar á leiö hans upp ána. Hann hafði tekið þau bæði eftir mikið mann- fa.ll í liði Ameríkumanna; hann hafði eyðilagt flota þann, sem Ameríku menn höfðu dregið saman á ánni undir verndarvæng virkjanna; og efri hluti árinnar lá nú opinn fyrir herskipum hans. Einnig hafði hann með aðdáanlegri kænsku og elju safnað saman á nokkrum smáskip- uin, er gátu siglt því nær alla leið til Albany, vistum, sem nægðu her Burgoynes til sex mánaða. Hann átti nú eftir að eins hundrað fimtíu og sex mílur til Burgoynes; og her- sveit með 1700 komst svo langt að ekki voru eftir nema 40 mílur til Albany. Því miður vissu þeir Bur- goyne og Clinton ekkert hvor um annars hreyfingar; en hefði Burgo- yne unnið sigur í orustunni þann 7. þá hefði hann innan skamms fengið fregnir um sigur Clintons og sömuleiðis hefði Clinton frétt um hans sigur. Lið þeirra beggja hefði mæst eftir sigurvinningarnar, og herferðin hefði máske enn náö tilgangi sínum. Alt var undir því komið, hvernig færi fyrir fylking- unni, sem Burgoyne leiddi móti herbúðum Ameríkumanna hinn við- burðaríka dag 7. október 1777. í fylkingu þessari voru vaskir menn, bæði Englendingar og Þjóðverjar; ein sveit hinna vöskustu hermanna, sem England átti, var í henni. Burgoyne sendi út nokkrar sveit- ir af hjálparliði til að villa óvinum sínum sjónir. Síðan leiddi hann hersveit sína þar til hún var minna en þrjá mílufjórðunga frá vinstra armi óvina hersins; þar fylkti hann mönnum sínum til áhlaups. Hin valda enska hersveit undir stjórn Ackland majórs og stórskotaliðs- sveit, sem majór Williams stýrði, voru í vinstri armi fylkingar; sveit Þjóðverja, sem Reidesel hershöfð- ingi réði yfir og nokkuð af brezku liði, sem Phillips stýrði, voru í miðri fylkingu, og hið léttara enska fót- göngulið ásamt stórri sveit, sem þeir Balcarres lávarður og Frazer hershöfðingjar voru yfir, voru í hægri fylkingararmi, En Gatesbeið ekki eftir því að á sig væri ráðist; um leið og brezka fylkingin var mynduð og byrjaði að ganga fram til atlögu sýndi hann aðdáanlega herkænsku í því að láta stórfylkingu sem saman stóð af hermönnum frá New York og New Hampshire undir forystu Poors hershöfðingja, og nokkurn hluta af ' stórfylkingu Leonards gera skyndilegt áhlaup á vinstri fylkingararminn; samtímis sendi hann Morgan ofursta með skotliðssveit sína og um 1500 manna í viðbót til að snúa hægri armi Englendinga. Sveit Acklands bar vel af sér áhlaup miklu mannfleira liðs. En Gates sendi fram fleir1 menn, og að nokkrum mínútum liðnum tókst orusta um alla miðja fylkinguna, var það gert til þess að Þjóðverjarnir gætu ekki hjálpað sveit Acklands. Morgan gekk hart fram með sveit sína á móti Balcarr- es lávarði og Frazer, og nýir hóp- ar sáust leggja af stað frá vinstri armi óvina liðsins, auðsjáanlega í þeim tilgangi að sveigja hægri fylk- ingararm Breta og varna honum undanhalds. Enska fótgönguliðið og sveit þeirra Balcarres og Frazers létu undan síga og fylktu sér á ská. Gátu þær á þann hátt staðið af sér

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.