Syrpa - 01.03.1914, Blaðsíða 50

Syrpa - 01.03.1914, Blaðsíða 50
176 SYRPA ,,Þetta ákvæði er óleyfilegt, hversu illa sem óvinaherinn er stadd- ur; og þessi hcr mun ráðast á óvini sína og biðja engrar vægðar fremur en aö leggja niður vopn í sínum eig- in herbúðum“. Eftir aS ýms skila- boð höfðu verið send fram og aftur komust á br&ðabyrgðarsamningar um uppgjöf hersins. Lið Burgoyn- es átti að ganga út úr herbúðunum án nokkurrar niðurlægingar, og stórskotaliðið í víggirðingunumfram á árbakkann, þar sem vopn og fall- byssur áttu að vera skilin eftir. Vopnunum átti að hlaðasaman eftir skipun frá þeirra eigin foringjum. Liðið, sem stóð undir stjórn Burg- oynes átti að fá ókeypis flutning til Englands, með því skilyrði, að cng- ir úr því tækju ai'tur herþjónuslu í Norður Ameríku í ófriðnum sem yfir stóð. Uppgjafarsamningar voru full- gerðir þann 15.; og að kvöldi þess sama dags kom sendiboði frá Clin- ton, sem færði fregnir umhvaðhon- um hefði orðið ágengt og kvað nokkurn hluta af liði hans liafa komist til Esopus, sem var ekki fullar fimtíu mílur frá herbúðum Burgoynes. En það var of seint. Opinberir skilmálar höfðu verið gerðir; og herinn var í raun og veru of aðfram kominn af þreytu og hungri til þess að geta varist árás, ef hún hefði verið gerð; og það er áreiðanlegt að Gates hefði gert á- hlaup á hann, hefði samningarnir verið rofnir. Bráðabyrgðarsamn- ingarnir gengu því í gildi 17. októ- ber. Samkvæmt þeim gáfust 5,790 menn upp og voru teknir í gæalu. Það var áætlað að hinir veiku og særðu, sem voru eftir í herbúöun- um, þegar brezka liðið hörfaði und- an til Saratoga, ásanit brczkum, þýzkum og kanadiskum hermörm- um, sem féllu, særðust, voru teknir höndum eða struku snemma í stríð- inu, væru 4,689. Veiku og særðu hermennirnir, sem féllu í hendur Ameríkumanna eftir bardagann þann 7. sættu sér- lega mannúðlegri meðferð; og þeg- ar herinn gafst upp sýndi Gates hershöfðingi göfugmannlega ná- kvæmni, sem verðskuldaði mjög niikla virðingu. Alt sem bar vott um sigurfögnuð var forðast. Am- erísku hermennirnir stóðu kyrrir í sínum skorðum þar til brezki herinn hafði lagt niður vopn sín. Og þeg- ar því var lokið var hinum sigruðu foringjum og liðsmönnum sýnd vin- gjarnleg umhyggja og þeim veitt alt sem þeir þurftu. Umræður miklar og deilur spunnust síðar út af sum- um atriðum í samningnum; og þing Bandaríkjanna neitaði lengi vel að staðfesta þá grein, sem ákvað, að flytja skyldi alla menn Burgoynes til Norðurálfunnar. En ekkert var hægt að gefa Gates hershöfðingja og mönnum hans að sök; þeir sýndu að þeir voru jafn veglyndir og þeir voru hraustir. Strax og sigur var unninn, sendi Gates Wilkinson ofursta til að færa þinginu hinar góðu fréttir. Þegar hann var leiddur í þingsalinn sagði hann: ,,Allur brezki herinn hefir lagt niður vopn sín við Saratoga; vor her, sem er fullur af hugrekki og þreki, bíður eftir skipunum yðar. Þér eigið að ákveða viturlega, hvar landið þarf ennþá þjónustu hans“. Þingið veitti hinum sigursæla hers- höfðingja og mönnurn hans laun og heiður í ríkum mæli. ,,Það er næst- um ómögulegt (segir ítalski sagn-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.