Syrpa - 01.03.1914, Page 53

Syrpa - 01.03.1914, Page 53
TÝNDA GULLNÁMAN. Saga frá landnámstíð Albertafylkis. Eftir kaftein C. E. DENNY Fyrir 35 árum síðan var vestur- hluti Kanada — austan Klettafjall- anna, því nœr óþektur, hinir einu hvítu menn er þar voru um slóðir — fyrir utan verzlunarmenn Hud- sonsflóafélagsins, sem þá höfðu þó engar stöðvar fyrir sunnan Norður- Saskatchewan ána — voru farand kaupmenn frá Mgntana, sem verzl- uðu við Indíána, og þó mest megnis með brennivín. Þessir verzlunar- menn höfðust sjaldan lengi við á sléttunum, heldur höfðu aðal-bæki- stöðvar sínar í virkjum, sem þeir höfðu bygt sér úr óunnum trjám, við sumar af ám þeim, sem falla um hérað það er nú kallast Alberta fylki. Þeir bygðu þessi virki sín eins nærri vetrarstöðvum Indíán- anna, sem þeim var frekast auðið. Eins og geta má nærri, rötuðu kaupmennirnir í mörg æfintýri á þessum kaupferðum sínum, milli hinna ýmsu Indíánaflokka, og sum þessi æfintýri voru svo svaðilfeng- leg og skelfileg, að þau eru nær því ótrúanle'g. Um vorið 1874 kom Kanada- stjórn á fót riddara-lögregluliði norð-vesturlandsins, og sendi það norðvestur í þessar óbygöir, aðal- lega til þess að líta eftir virki einu, er Ameríkanskir brennivínssalar höfðu bygt þar, sem árnar St. Mary og Kviðará (Belly River) mætast, og kallað var ,,Whoop-up". Var það meginstöð kaupmannanna, og vörubirgðir sínar fengu þeir frá Fort Banton, er stóð við Missouri- ána. Eg var einn í þessari lögreglu- sveit, og var það aðal-ætlunarverk okkar, að stemma stigu fyrir þess- ari vínsölu til sléttu-Indíánanna ; var þeim að henni hið mesta tjón. Einnig áttum við að reyna að leiða Indíánana inn á brautir menninga og mannasiða. Lögreglusveitin var fáliðuð, að eins 300 manns, en lcnáir sveinar voru þar á meðal. Örðug var ferðin vestur, því landið var ókannað og vegleysur miklar, og ekki náðum við Whoop-up fj'r en seint í október 1874. Nálægt Whoop-up reistum við virki, stóð það á bökkum Öldungsár (Old Man’s River), og var bygt úr tré- drumbum með moldarþökum, nefnd- um við virkið Fort Macleod, eftir yfirmanni vorum. Byrjuðum við þegar að handsama og retsa kaup- mönnum þeim, sem höfðu vínbirgð- ir, eða voru staðnir að því, að vera að pranga því í Indíánana. Árang- urinn af starfsemi þessarar fáliðuðu sveitar, er nú kunnur uin heim all- an, og sýnir sig nú bezt í hinum blómlegu bæjum og sveitum, sem eru víðs vegar um Alberta og Sa- skatchewan.

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.