Syrpa - 01.03.1914, Side 65

Syrpa - 01.03.1914, Side 65
ÚR DULARHEIMI 191 greip hann, vörnuöu því a8 hann gæti veitt þessu nákvæmari eftir- tekt. Og svo brast hann vitsmuni til þess líka. Sýnin sjálf varaCi ekki lengi, hún var von bráöar horfin, eftir aö hún var liðin fram hjá. En sönghljóm- urinn fanst honum berast til sín óra- leiö utan úr geimnum, unz hann dó út í ómælisfjærö. Lengi stóö maðurinn sem högg- dofa í sömu sporum, áöur hann gekk aftur til hvílu sinnar. Hann reyndi aö sofna aftur, en þaö vildi ekki takast, því sýnin stóö fyrir hugskotssjónum hans, sem fyrirboöi einhverra voöatíðinda, hallæris eöa drepsóttar. Litlu síöar barst sú fregn út um landið, aö sálmaskáldiö mikla, séra Hallgrímur Pétursson, væri dáinn. Hann haföi dáið sömu nóttina sem sýnina bar fyrir manninn á Baröa- strönd. E. S. V. Smávegis. Geta ehhi gifzt. Samkvæmt skýrslum um manntal það, er tekið var á Enj*landi og í Wels árið 1911, eru í þeim löndum 1,179,270 konur, sem enga von geta haft um að giítast. I skýrslunum eru töfiur^ sem sýna hlutföllin milli fjölda karla og kvenna í hinum ýmsu héruðum, þegar manntalið vat* tekið, og má af þeim ráða^ live misjafnt stúlkurnar standa að vígi. Árið 1911 voru hlutíöllin í Englandi og Wells eins og hér segir : Konur........ 18,024,884 Karlmenn.... 17,445,008 Konur fleiri 1,179,270 Á móti hverjum 1000 karlmönnum eru því 1068 kvenmenn. Vert er að geta þess, að þetta er nákvæmlega sama hlutfallið og fyrir tíu árum. Til gamans setjum vér hér töflu, sem sýnir hve margir kvenmenn eru á móti hverjum 1000 karlmönnum í nokkrum öör- um löndum : Noregi............. 1009 Frakklandi......... 1033 Bandaríkjunum...... 943 Ástralíu............ 920 Nýja Sjálandi ...... 890 Ceylon ............. 888 Canada.............. 880 Stúlkur, sem flytja til nýlendanna, eiga því miklu hægara með að finna lífs föru- naut en t. d. þær, sem heima eiga í East Sussex á Englandi, því að þar verða 25 stúlkur af hverju hundraði að láta sér lynda að lifa ógiftar eða að eiga ekkju- menn. Á síðustu 10 árum hcfir fólkinu fjölgað á Bretlándi um 3,753,107. Þó hafa stærri borgir og bæir ekki vaxið að sama skapi; jafnvel hefir íbúum sumra þeirra fækkað. Greinilegast kom þetta í ljós í Lundúna- borg* sjálfri. I aðalborginni var fólksfjöld- inn þessi: Árið 1901 .... 4,530,207 - 1911 ..... 4,521,085 Fækkað um 14,582 Þetta er, eins og gefið er í skyn í skýrsl- unni, fremur góðs en ills viti. Það sýnir, að menn hafa vit á að nota sér hin hag- kvœmu samgöngufæri, til að flytja sig þangað sem ætið er mest. Á meðal 350 manns, sem lagði af stað frá New York í byrjun maí-mánaðar síð- astl. í ferðalag umhverfis jörðina, voru 33 ekkjur.

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.