Syrpa - 01.03.1914, Blaðsíða 66
192
SYRPA
Sönglistin heillar hann
hnndraS ára gamlan.
Tómas Collins, heitir maðnr, sem býr
búi sínu nálægt London f Ontario, og á
hundraðasta aldursári sínu byrjar að læra
söngfræði. Hann er að mörgu leyti tákn
og undur fylkisins. Sjón hans er skýr,
hugsunin skörp og að ytra útliti virðist
hann ekki vera meira en sextugur. Hann
leikur sór að'því að kiifra hjálparlaust efst
upp í vindmylnur, eins og tvítugur piltur.
Mest furðar þó nágranna hans á því,
hve miklar mætur svo gamaU maður get-
ur haft á sönglistinni. Lengi hefir hann
verið mjög sönghneigður; liann hefir
sterka bassarödd og getur enn.þrátt fyrir
aldurinn, sungið sæmilega. En nú langar
hann til að læra að þekkja nóturnar og
gildi þeirra, áður en hann deyr. — Hann
býr á 200 ekra jörö. íveruhúsið er úr
tígulsteini; hann bygði það sjálfur fyrir
50 árum, og hafði engan sér til aðstoðar
við verkið, nema 8 sonu sína, sem þá voru
á æskuskeiði. Tígulsteininn, sem í húsið
þurfti, bjó hann einnig til sjálfur, og svo
er húsið rammlega gjört, að á því sér
hvorki skekkju né sprungur.
Langlífi og heilsuhreysti Mr. Collins er
því að þakka, að hann er reglusamur og
hefir lifaö óbrotnu sveitalífi alla sína æfi.
Hann borðar morgunverð kl. 7, miðdags-
verð kl. 12, kvöldverð kl. 6, og háttar
aldrci seinna en kl. 0. Hvorki hefirhann
snert áfengi né tóbak síðan fyrsta barn
hans fæddist; síðan eru liðin nærfelt sjö-
tíu ár.
Mr. Collins agar stranglega heimilisfólk
sitt og börn sín. Það er sagt að aldrei
hafi börnin fengið að leika sér í návist
hans, nema á jólakvöldið.
Líkkistu sína hafði hann tilbúna fyrir
tuttugu árum. Hann smíðaði hana sjálf-
ur; hún er úr þykkum eikarborðum gylt á
röðum. Geymir hann hana nú sem menja-
grip í svefnhúsi sínu.
35 barna faSir.
Klæðskeri nokkur, 53 ára gamall, er
Ferdinand Eglinski heitir, og heima á í
Ashbeck á Þýzkalandi, hefir vakið athygli
um endilangt landið og víöar. Hann
skarar hvorki fram úr öðrum að viti né fá-
vísi, en hann er talinn að eiga fleiri börn
en nokkur annar maður á Þýzkalandi.
Blað nokkurt þar í landi flutti nýlega á-
grip af æfisögu hans. Segir þar meöal
annars, að hann hafi gifzt tveimur systr-
um, hverri á eftir annari, og eignast með
þeim báðum 35 börn. Tuttugu og sex
þeirra eru enn á lífi, 19 drengir og 7 stúlk-
ur. Síðast liðið ár voru sex synir hans í
senn í þýzka hernum.
Eglinski kvongaðist þegar hann var 20
ára að aldri. Fyrri kona hans dó 1907,
og eftir lét honum 21 börn. Árið eflir
gekk hann aö eiga systur fyrri konu sinn-
ar, og hafa þaj eignast II börn á sex ár-
um. Einu sinni hafa þau eignast þrfbura,
og tvisvar tvíbura. Þegar sjötti sonur
hans gekk í herþjónustuna í fyrra, boðaði
keisarinn hann á fund sinn, og skipaði að
halda honum vikuveizlu í Berlín á kostnað
hans hátignar, keisarans. Að skilnaði
gaf keisarinn honum 50 marka bankaseð-
il, klappaði honurn á öxlina og mælti:
„Haltu áfram liinu góða verki þínu, Egl-
inski“. Hinn dyggi þjónn srierist á liæli,
gaf merki á hermanna vísu og sagði:
„Reiöubúinn, yöar hátign“.
Búddatru í NorSurálfunni.
Búddatrúin liefir drjúgum teygt út ang-
ana í Norðurálfunni árið sem leið. Með-
limir Búddafélagsins í Bretlandi og á ír-
landi skifta hundruðuni, og undirdeildir
hafa verið stofnaðar í Liverpool og Edin-
burgli. Professor Rhys Davids, sem mik-
ið hefir skrifað um austrænar bókmentir,
er forseti þess. Skozkur maður, sem snú-
ist hefir til Búddatrúar, heflr verið sendur
til Englands. Er það fyrsti Búdda trú-
boði, sem haft hefir þar fast aðsetur.
Búddatrúar menn á Þýzkalandi haía einn-
ig færst tlrjúgum í aukana. Þeir hafa
tvö stór blöð. Er annað þeirra gefið út í
Leipzig, hitt í Breslaw. Mest hefir þó
verið unnið að útbreiðslu Búddatrúarinn-
ar á Ungverjalandi. Þar hafa aðal-trú-
bækur þeirra verið gefnar út fimm sinn-
um. Þar hefir einnig veriö reynt að fá
Búddatrúna opinberlega viðurkenda, svo
að kenna mætti þau trúarbrögð í skólum
þess lands. Enn sem komið er, hefir það
þó ekki lekist.