Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Síða 5

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Síða 5
TENGDADÓTTIRIN. 51 »Herra greifi. Nú á Michaelsmessu á að endurnýja leigusamningana um þann hluta af klausturakrinum, sem liggur hjá Dolsernheim. Baróninn í Fliiggendorff vill fá hann leigðan áfram. En okkur væri ómetanlcgt gagn að klausturakrinum, þvf hann liggur svo vel við og er svo vel ræktaður. Greifinn ætti nú að taka hann sjálfur en ekki láta aðra nota hann eingöngu.« »En eg hefi þá enga peninga, herra Lúthke.« Bústjórinn þurkaði svitann af enninu með silkivasaklútnum sínum, því næst sagði hann: »Peir peningar koma aftur með tvöföldum vöxtum, herra greifi. Retta er hveitiakur, sem aldrei bregzt.* »En eg hefi enga peninga,« sagði greifinn óþolinmóður. Yður er sjálfum bezt kunnugt um það.« Lúthke þagði nokkra stund og sagði síðan: »Já, það er mér. En það hefði vel verið hægt að komast af án nýja vagnsins og hest- anna. Pað hefði vel mátt nota gömlu hestana lengi enn, — og unga greifafrúin — —« Meira fékk Lúthke ékki sagt, því greifinn greip fram í fyrir honum og sagði: »Eg ætla að biðja yður í eitt skifti fyrir öll að blanda ekki ungu greifafrúnni inn í þetta., — Og kiausturakurinn vil eg ekki hafa, eg hefi önnur ráð með höndum.« Lúthke hneigði sig viðvaningslega og fór, út í dyrunum mætti hann Margrétu, og heils- aði hún honum vingjarnlega, en jafnskjótt• og hann var farinn og hafði lokað dyrunum á eftir sér, hljóp hún tíl manns síns og sagði: »F*ú ert ljóti eiginmaðurinn að láta mig vera svona aleina allan morguninn. Þetta er ljóta hrukkan, sem þú hefir þarna milli augna- brúnanna,* sagði hún og leit á mann sinn. »Nú skal eg nudda hana burtu. Svona. Nú er hún farin. En þetta stafar alt af því. að þú hefur ekkert skipulag á vinnutíma þínum. Pabbi vann ávalt af kappi frá klukkan ellefu til klukk- au sex. Ávalt endra nær var hann hjá okkur krökkunum og mömmu og var þá enginn eins kátur og hann.« »Mér væri kært ef þú vildir gera stunda- töflu handa mér,« sagði Gúnther í gamni, og ætti hún að hljóða eitthvað á þessa leið: Frá klukkan 9 til tl árdegis: Hjónasæla. Frá kluk- an 12 á hádeigi til klukkan 4 síðdegis: Vinna. Svo hvíld og að lokum einn koss, en aðeins einn, því hóf skal á öllu hafa.« Margrét roðnaði og fór út að glugga. Gúnther gekk fram og aftur um gólfið eins og vandi hans var til, er honum var skapþungt- »Pú verður að fyrirgefa mér, kæra Margrét,« sagði hann skömmu síðar og lagði handlegg- inn utanum hana, »að eg er í slæmu skapi í dag. Blessaður karlinn, hann Lúthke, hefir nú síðustu vikurnar tosað mér miskunarlaust milli fjóssins og svínagerðisins og milii hænsahúss- ins og fjárréttarinnar og sýnt mér allan fénað- inn. Hann hefur með mestu samvizkusemi skýrt mér frá„ætt og aldri hverrar skepnu og lýst kostum hennar og göllum. Nú hringsnýst þetta altsaman fyrir mér, svo mig er farið að dreyma um það á nóttunni.* »En þykir þér ekki vænt um eignir þínar, vinur minn, og hefur þú ekki ánægju af þeim? Hér hefur faðir þinn sáð og gróðursett og hér ert þú algerlega einvaldur og getur hald- ið áfram starfi þínu, er honum entist ekki ald- ur til þess.« Hann stóð við gluggann og horfði hugs- andi á trén í garðinum og fuglana sem flugu syngjandi af einni grein áaðra. Eftir að hafahorft á þetta um stund sagði hann: »Eignarréttartilfinningin hjá mér er mjög lítið þroskuð. Eg álít, að brauðið, sern við et- um, verði ekki betra, þótt rúgurinn eða hveit- ið, sem það er gert úr, hafi vaxið á akri, sem er mín eign. Rósin sem þú hefur í hárinu, er heldur ekkert fegurri í mínum augum, þótt hún hafi vaxið í garðinum mínum. Mér finst það vera hlægilegur hégómi að hafa meiri mætur á því, sem maður hefir fengið að erfð- um en því sem maður hefur aflað sér á ein- 7*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.