Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Qupperneq 12

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Qupperneq 12
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 58 í heimi þessum en ófarsælt hjónaband. Alt það góða, sem eg átti til í mér, hefir visnað og skrælnað og orðið að engu í þessari tíu ára kvalafullu sambúð. - Og eg hataði hann frá því við vorum í Hellerbrook hérna um árið.« »Hvenær var það? Eg man ekki eftir því.« Hún strauk hárið frá enninu og eldur brann úr augum hennar. »Við vórum þar nokkrar vikur þetta sumar. Rér voruð þar einnig og voruð nálega ávalt hjá okkur. Retta var sumarið, sem hann Kayser- ling yfirdómari skaut sig. Maðurinn minn hafði frétt það snemma morguns og kom strax inn til mín, brosandi út undir eyru og spurði mig, hvort eg hefði frétt, að hann Randau, sem hefði haft svo mikið dálæti á mér, að hann hefði ekki mátt af mér sjá, hefói skotið kúlu í gegn- um höfuðið á sér í nótt. Er hann hafði sagt mér þessi tíðindi, fór hann að drekka kaffið, og það gladdi hann sjáanlega mikið, að vera sjónarvottur að hrygð minni. Eftir það hataði eg hann og hræddist eins og eiturnöðru.« sRað var illa gert af honum,« sagði Gúnt- her. »En hvernig gat yður dottið í hug, að eg færi að stytta sjálfum mér aldur, þarna alveg fyrir augunum á yður. — En hvað gengur að yður?« sagði hann og gekk út að glugganum til hennar. »Þér skjálfið eins og hrísla í stór- viðri — og þér grátið. Rér megið ekki gráta, kæra Edit, það ættuð þér að láta aðrar konur einar um. Eg hefi aldrei fyr séð yður vera svo skapþungt.« Hann tók í hönd liennar innilega. Pví næst tók hann með annari hendinni undir höku hennar og lyfti upp höfðinu og horfði beint í augu hennar, sem voru full af tárum. »Nú eruð þár hættar að gráta,« sagði hann glaðlega að lítilli stundu liðinni. »Nú ætla eg einnig að hjálpa yður að laga á yður hárið, því þótt þér hafið fagurt hár og mikið, þá kann eg ekki við að sjá það falla niður um yður eins og á hafmey.« Pví næst tók hann hárið, gerði úr því vöndul og vafði honum um hendina á sér. Ylmurinn af hárinu streymdi að vitum hans og gerði hann utan við sig, svo hárlokkarnir flæktust um fingur honum svo hann gat ekki losað þá. »En hvað yður ferst þetta klaufalega,« sagði hún hlæjandi og greip með báðum höndum um hárið. Viljið þér gera svo vel og fara burtu með hendur yðar úr hári mínu? Æ, þér hárreitið mig!« Gúnther hafði nú ioks tekist að losa fing- ur sína og stóð nú og horfði á, hvernig hún vafði hárinu í vöndul og gerði svo úr honum knút, sem hún því næst festi ofan á höfðinu á sér. »Nú kannast eg við yður,« sagði hann bros- andi. »En þér verðið að lofa mér því að gráta aldrei í nærveru minni, þvi þá verð eg utan við mig. Pér fallið mér svo vel í geð sakir þess, að þér eruð ekki eins og aðrar konur. Þér getið haldið tilfinningum yðar leyndum, en öðru kvenfólki er það ómögulegt. Nú veröið þér að lofa mér því að gráta aldrei framar.« Hún var nú aftur orðin hýr á svip og sagði hlæjandi: »Úr því yður er svona meinilla við tárin, þá hljótið þér að hafa mikla leynslu fyrir yður í þeim sökum. En nú Iofa eg yður og staðfesti það heit mitt með handabandi, að þetta skal vera f fyrsta og síðasta sinni, sem þér sjáið mig gráta.« Þau gengu saman út í garðinn til þess að líta til veðurs. Pað var komið dálítið kul og þokan var að hverfa. Gúnther bað húskarl einn, er þar var, að sækja hest sinn og því næst kvaddi hann frúna. »Komið þér til Hellerbrook ídag?«spurði hún hann, er hann hafði kvatt hana og ætlaði að ganga til hests síns. »Pað er söngskemt- un þar í dag. Eg er að hugsa um að aka þangað, að minsta kosti hittir maður þar ávalt einhverja, sem maður þekkir.« »Ef konan mín vill fara, þá kem eg,« sagði Gúnther. En þegar barónsekkjan spurði hann í háði,

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.