Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Side 15

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Side 15
KYNJALYFIÐ. Saga írá krossferðatímunum. (Eftir Walter Scott.) FYRSTI KAPÍTULI. Dag einn var Sýrlands brennheita sól komin hátt á ioft, þegar riddari nokkur, sem bar merki rauða krossins, var á ferð um hina sendnu eyðimörk, sem liggur út frá dauða haf- inu — þessu einkennilega innilukta hafi. sem tekur á móti ánni Jórdan, þótt það sjálft hafi ekkert afrensli út í nokkur heimshaf. Pessi hertygjaði pílagrímur hafði yfirgefið fjarlægt heimkynni norður í löndum til þess að ganga í krossfaraherinn f Kanaansiandi. Hann hafði orðið að fara yfir ýmsar torfærur þenn- an morgun, en var nú kominn út á flata sand- sléttu, þar sem borgirnar Sódóma og Gómorra höfðu staðið í fyrndinni. Hugsunin um hin voðalegu náttúruumbrot, sem höfðu breytt hinum fagra dal í eyðimörk, höfðu svo mikil áhrif á riddarann, að hann gleymdi bæði þreytu og þorsta. Hann signdi sig, þegar hann fór að athuga hinar dökku sandöldur, sem voru svo ólíkar öllu því, sem hann hafði áður séð, og það fór hrollur um hann við þá hugsun, að hinar glæsi- legu borgir væru grafnar undir þessari sand- auðn, og að, eldsumbrot jarðarinnar eða öfl himinsins hefðu sökt þeim þarna í hið ömur- lega sandhaf; þar sem enginn fiskur lifir og engin skip ferðast um. Alt umhverfið var þar vafalaust ennþá eins og á dögum Mósesar, ríkt af brennisteini og salti, svo þar gat enginn jarðargróður þrifizt. Landið máfti eins heita dautt og hafið, sem lá þar í nánd. Alt útsýn- ið var ægilegur, talandi vottur um sannindi frá- sagnanna í Mósesbók um eyðing hinna gömlu borga. Sólin helti brennandi geislum sínum yfir þessa dauðans eyðimörk, svo hitinn var nær því óþolandi, enda var sem alt lifandi hefði flúið frá þessari steikjandi sandauðn, nema þessi pílagrímur, sem v?r þar einn á ferð. Hestur hans óð hinn lausa sand með erfiðismunum og þreytulega, svo riddaranum miðaði hægt áfram. Klæðnaður riddarans og hertygi virtust ekki vera velvalin til ferða í þessu landi. Hann var í spangabrynjuserk með löngum ermum, bar járnglófa á höndum en járnskó á fótum. Breið- ur hringabrynjukragi hlífði hálsi hans og voru skeyttar við hann stálþynnur, sem gengu út á axlirnar. Til hlífðar hnjám og leggjum voru hólkar úr stájþynnum, en á höfðinu bar hann stálhjálm með áfastri andlitshlíf úr sama efni, sem hægt var að láta falla fyrir andlitið, hve- nær sem þurfa þótti. Við hlið hans hékk í sliðrum langur tvíeggjaður brandur með gulli- greiptum hjöltum. Við hina hlið hans hangdi langur tygilhnifur. Aðalvopnið virtist þó vera löng stöng með stáloddi, sem var fest við söð- ulinn. Annan enda hennar bar allhátt og var á honum lítill fáni. Utan yfir þessum þungu hertygjum bar ridd- arinn forna skikkju, mjög útsaumaða. Hún var úr þunnu efni, en gerði þó það gagn að bægja sólargeislunum frá að falla beint á hinar traustu stálhlífar. Skikkjan var prýdd með skjaldmerki riddarans, sem að vísu var farið að mást, en þó mátti sjá, að það var sofandi Leópard. Par undir stóð kjörorð hans: »Egsef- vekmigekki*. Af skildi riddarans var skjaldarmerkið fyrir löngu afmáð af höggum og kesjulögum. Hestur pílagrímsins var einnig að nokkru

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.