Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Síða 16

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Síða 16
62 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. leyti brynjaður, og við söðulbogann hékk or- ustukylfan, nokkurskonar hamar úr stáli. Krossfararnir frá Norður-Evrópu voru vanir að bjóða hita og siðum Austurlanda birginn, og ferðast í sínum þungu herklæðum á brynjuðum stríðshestum, og vaninn kendi mönnum og hest- um að þola þetta. En þó voru ýmsir, sem ekki þoldu umbreytinguna og margir krossfarar dóu, áður en þeir vöndust við að þola hinn brennandi hita sólarinnar í Sýrlandi eða Kana- anslandi; en á marga beit þó ekki hið heita loftslag, og vöndust þeir því svo, að það grand- aði þeim eigi fremur en þeim innfæddu. Einn af þeim mönnum var hinn hertygjaði pílagrímur, sem þarna var á ferð í eyðimörkinni. Líkamsbygging hans var svo sterk, að hin þungu hertygi mæddu hann ekki meira en þótt þau hefðu verið úr Iéttasta líni, og heilsan var óbilandi, hún þoldi öll umskifti hita og kulda og erfiði og skort, þegar því var að skifta. Sálin var og sterk og heilbrigð eins og lík- aminn, dags daglega kyrlát og stilt, en við hinn þunga undirstraum af afli og þoli brann þó frægðarþrá og löngun eftir að reyna sig og vinna riddaraleg hreystiverk og frama. Jarðneskra fjársjóða hafði þessi riddari þó ekki aflað sér þau tvö ár, sem hann hafði að- stoðað krossferðahöfðingjana á Sýrlandi, en hins vegar frægð og heiður og þann orðstír, að hann væri göfugmenni. Peningabirgðir hans voru nú á þrotum, enda hafði hann aldrei tek- ið upp þann ljóta vana sumra krossfaranna, að auðga sig á kostnað innlendra manna. Hann var of samvizkusamur og göfuglyndur til þess að neyða út fé af vesalings bændunum fyrir að hlífa eignum þeirra, og hann hafði heldur eigi lagt það í vana sinn að ná á sitt vald ríkum mönnum, til þess að geta pínt út fyrir þá lausnargjald. Lítil sveit hraustra drengja hafði fylgt hon- um úr föðurlandi hans til Asíu, en þeir drengir týndu tölunni jafnhliða þvf, að þau efni hans gengu til þurðar, að geta séð þeim farborða. Nú var eigi nerna einn eftir af sveinum hans, og hann lá sjúkur og því eigi fær um að fylgja félaga sínum og herra. Eigi að siður var þessi krossriddari hinn öruggasti. Hann treysti sér og vopnum sínum. og góð samvizka var hans bezti förunautur. En þrátt fyrir afl og þor þessa Leópards- riddara hafði þó þörfin fyrir næring og hvíld sín áhrif á hann. Hann gladdist því ekki lítið þegar hann um miðjan daginn koni auga á nokkur pálmatré, sem hann vissi að stóðu við ágæta uppsprettulind og var það víðfrægur hvíldarstaður manna og dýra um þær slóðir. Gæðingurinn, sem hann reið á, og vaðið hafði sandinn með hinni mestu þolinmæði, reisti nú höfuðið, .dró andann dýpra og greikk- að sporið, eins og hann einnig vissi um lind- ina góðu og hið gróðurríka haglendi í kring- um hana, þar sem hvíldin, saðningin og svala- drykkurinn biði hans. En áður en riddarinn náði áfangastaðnum, urðu þeir atburðir, er töfðu ferð hans um stund. Við það að riddarinn var að virða fyrir sér pálmaviðartrén, sem enn voru í allmikilli fjarlægð, kom hann auga á eitthvað kvikt í nánd við þau. Brátt sá hann að þetta var ríðandi maður, sem nálgaðist hann með miklum hraða, og þegar hann kom nær, sá hann að þetta var saracenskur riddari*), það þekti hann á vefjar- hettinum (Turbaninum), riddarans langa spjóti og flak’sandi yfirhöfn. Austurlanda málsháttur segir: »í eyðimörk mætir enginn vini.c Enda stóð kross-riddar- anum það alveg á sama, hvort þessi heiðingi, sem óðfluga nálgaðist hann á arabiskum gæð- ingi, lcæmi méð friði eða ófriði; sem svörnum krossins hermanni var honum eigi ógeðfelt að eiga vopnaviöskifti við mann þennan. Hann Iosaði því stöngina frá söðlinum og bar hana lágt í hægri hendi, svo tók hann fastara í taumana með þeirri vinstri til að að- vara hestinn og beió svo eftir aðkomumanni með stillingu og öruggu sjálfstrausti, sem var *) Saracenar voru Arabar og fleiri Múha- meðstrúarmenn kahaðir á tímum krossferð- anna.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.