Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Síða 28

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Síða 28
74 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. að svo hefði getað farið, að hanri í bráðræði hefði með henni molað höfuð söngvarans án frekari skýringar, en þá kom það atvik fyrir» sem frelsaði hann frá því bráðræðisverki, sem ávalt hefði orðið blettur á hans riddara- Iega mannorði. Pví í þeirri svipan sem Sara- ceninn endaði söng sinn hljóp langi maðurinn, sem var klæddur geitaskinnum, í veginn fyrir hann, greip með báðum höndum um tauma hestsins og hratt honum aftur á bak með afli miklu. Hesturinn reis upp að framan og féll aftur á bak, en riddarinn gat með snarræði stokkið til hliðar, svo hann varð ekki undir hestinum. Áhlaupsmaðurinn slepti þá hestinum en greip til riddarans, varpaði honum til jarðar og hélt honum niðri þrátt fyrir það, að hér var auð- sær aldursmunur og emírinn var mikill liðleika maður. Saraceninn hrópaði hálf hlæjandi: »Hamakó fíflið þitt — sleptu mér! Pú ferð lengra en þú hefur leyfi til. Sleptu mér, annars gríp eg til rýtingsins.* »Til rýtingsins! vantrúaði hundur!* hrópaði maðurinn í geitaskinnskuflinum. »Haltu honum ef þú getur,« og í einu vetfangi sneri hann rýtinginn úr hendi emírsins og veifaði honum yfir höfði sér. »Hjálp! kristni maður! hjálp« hrópaði emírinn, sem ekki var farið að lítast á blikuna. »Hamakó ætlar að drepa mig.« «Drepa þig?» svaraði fjallabúinn. «Að vísu hefðir þú verðskuldað bráðan bana fyrir að syngja þitt óguðlega kvæði, sem er ekki einasta geðþekt falsspámanninum heldur líka til heiðurs sjálfum Iýginnar höfundi.« Kristni riddarinn hafði að þessu horft þeg- jandi og undrandi á þessa viðureign og var naumast búinn að átta sig á því, hvað um væri að vera. Nú fann hann að skyldan bauð hon- um að miðla málum og reyna að bjarga sam- ferðamanni sínum úr þeim heljargreipum, er hann var kominn í. Hann mælti því við hinn sigrandi geitarskinnsgarp: »Hver svo sem þú ert, hvort heldur er- indisreki hins góða eða illa, læt eg þig vita, að eg þessa stundina með eiði er bundinn við að vera Saracenanum, sem þú hefur lagt að velli, trúr förunaulur. Eg vil því biðja þig að lofa honum að standa á fætur, ella verð eg að ráðast á þig hans vegna.« »Rað væri sannarlega árás, sem sómdi sér fyrir krossriddara, að berjast fyrir heiðinn hund við einn af trúarbræðrum sínum, eða ert þú kominn hingað í óbygðirnar til þess að berj- ast fyrir hálfmánann gegn krossinum. Rú ert sannarlega fyrirlitlegur krossfari, sem með köldu blóði hlustar á söngva þá, sem sungnir eru andskotanum til lofs og dýrðar.« Á meðan hann þusaði þetta, reis hann á fætur og lofaði Saracenanum að standa upp, fékk honum rýtinginn og mælti um leið: »Rú sérð nú hvaða hættu dirfska þín get- ur valdið þér, og hve létt þú verður yfirunn- inn, jafnvel af vopnlausum manni, þegar það er himinsins vilji. Varaðu þig því, Ilderim, því það vil eg láta þig vita, að ef fæðingarstjarna þín tindraði ekki með einkennilegu skini, sem lofar þér himnafriði og herrans náð í fyllingu tím- ans, þá mundi eg eigi hafa skilið við þig að þessu sinni, fyr en eg hefði snúið þig úr hálsliðnum og slitið sundur þann barka, er var að syngja óguðlegar vísur.« »Oóði Hamakó,« svaraði Saraceninn þykkju- laust, »vara þú þig framvegis á því, að gera þér of dælt við þá, sem af góðsemi sinni lofa þér að leika lausum hala hér í Iandi. Enda þótt eg sem sannur Múhamedsmaður virði þá, sem himininn hefir tekið vitið frá, en veitt þeim spádómsgáfuna í staðinn, þá þoli eg þó ekki áð þú í öðru sinni takir í taumana hjá mér og veltir mér og hinum góða hesti mínum, eða leggir hendur á sjálfan mig. Þú mátt segja hvað sem þú vilt, það særir mig ekki. En mundu að öðru leyti eftir þessari viðvörun minni, því ef þú í annað skifti sýnir þig í því að ráðast á mig, þá hegg eg bara þinn loðna haus af þínum horaða hálsi. Og þú vinur Ken- neth,« bætti hann við um leið og hann steig á bak, »þér vil eg segja það, að á ferð um ó-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.